Benjani er leikmaður 23. umferðar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 22. janúar 2008 10:16 Benjani fagnar einu þriggja marka sinna gegn Derby með David Nugent. Nordic Photos / Getty Images
Benjani skoraði þrennu í leik Portsmouth og Derby í ensku úrvalsdeildinni um helgina og hlaut útnefninguna leikmaður 23. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar. Smelltu hér til að skoða myndband af leikmanni umferðarinnar. Benjani hefur nú skorað tólf mörk á þessu tímabili en fyrir tímabilið ætlaði hann sér að skora tíu til fimmtán mörk. Hann hefur nú endurskoðað þá markmiðssetningu. „Ég held að ég hafi tíma til að skora 20 mörk. Að ná 20 mörkum í ensku úrvalsdeildinni væri stórkostlegt,“ sagði hann. Benjani er frá Zimbabwe sem komst ekki í úrslit Afríkueppninnar sem fer fram þessa dagana í Gana, Harry Redknapp sjálfsagt til mikillar gleði. „Það var frábært að sjá þessi mörk hjá Benjani,“ sagði Redknapp. „Þetta er frábær drengur. Hann kvartar aldrei og er alveg grjótharður. Hann spilar þótt hann sé meiddur og er gríðarlega vinnusamur.“ Þótt ótrúlega megi virðast var það Arsene Wenger sem mældi með Benjani við Harry Redknapp á sínum tíma en Benjani hefur verið hjá Portsmouth í slétt tvö ár. Hann er fyriliði landsliðs síns og er þriðji leikmaðurinn frá Zimbabwe sem leikur í ensku úrvalsdeildinni. Hinir eru markvörðurinn goðsagnakenndi Bruce Grobbelaar og Peter Ndlovu sem lék með Coventry, Birmingham og Sheffield United. Benjani lék í fjögur ár með Auxerre í Frakklandi og árið 2003 varð hann fyrsti leikmaðurinn frá Zimbabwe til að spila í Meistaradeild Evrópu.
Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Dagskráin í dag: Hvaða lið fellur úr Bestu deildinni? Sport Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Handbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Íslenski boltinn Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Fleiri fréttir City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Sjá meira