Viðskipti erlent

Eina mesta bensínlækkun í manna minnum í Danmörku

Bensínstöðvar um alla Danmörku hafa lækkað bensínverð hjá sér um tæplega 9 kr. líterinn í morgun. Samkvæmt fréttum danskra fjölmiðla er hér um eina mestu bensínlækkun að ræða í manna minnum.

Eftir lækkunina kostar líterinn af 95 oktan blýfríu bensíni tæplega 187 kr. og hefur verðið á honum ekki verið lægra í Danmörku síðan í vor. Verð á dísellítranum lækkar tæplega helmingi minna eða um 4 kr.

Þessi lækkun í Danmörku kemur í kjölfar mikillar lækkunar á heimsmarkaðsverði á olíu síðustu vikurnar en olían hefur lækkað niður í rúma 93 dollara. Reiknað er með að verðið eigi eftir að lækka ennfrekar.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×