Viðskipti erlent

Norski seðlabankinn dælir 2.600 milljörðum kr. í markaðinn

Norski seðlabankinn heldur áfram í morgun að dæla óhemjufé í fjármálamarkaðinn þar í landi. Frá því á föstudag eru þetta orðnir 165 milljarðar nkr. eða sem svarar um 2.600 milljörðum kr.

Hlutabréf í norsku kauphöllinni hafa lækkað mikið síðustu tvo daga og í gær var einn versti dagurinn í sögu kauphallarinnar er vísitalan lækkaði um rúm 6%.

Fyrir utan óróleikann á fjármálamörkuðum heimsins almennt hafa Norðmenn einnig farið illa út úr því að heimsmarkaðsverð á olíu hefur hrapað undanfarnar vikur.

 








Fleiri fréttir

Sjá meira


×