Viðskipti erlent

Starfsmenn Lehman fullir örvæntingar

Höfuðstöðvar Lehman Brothers, New York
Höfuðstöðvar Lehman Brothers, New York MYND/AFP

Bandaríska dagblaðið Wall Street Journal lýsir á forsíðu í morgun þeirri örvæntingu sem gripið hefur um sig í höfuðstöðvum fjárfestingabankans Lehman Brothers eftir allar tilraunir Richard Fuld, forstjóra bankans, til að finna kaupendur að hluta starfseminnar eða nýja hluthafa sem gætu lagt fram nægilegt fé til að mæta ævintýralegu tapi félagsins síðustu ársfjórðunga, hafa farið út um þúfurt.

Að sögn blaðsins eru óbreyttir starfsmenn félagsins fullir vonleysis meðan stjórnendurnir leita logandi ljósi að kaupendum. Blaðamaður WSJ segist hafa orðið vitni að símtali starfsmanns Lehman þar sem hann sagði meðal annars "Þetta er búið maður... nema við finnum kaupendur á næstu 24 klukkutímunum, annars er þetta búið." Starfsmaðurinn neitaði að svara spurningum blaðamannsins sem segist hafa orðið vitni að öðrum álíka samtölum.

Business Week segir starfsmenn Lehman nú leita sér að nýrri vinnu, og að stórir hópar starfsmanna hafi verið í samræðum við vini og kunningja hjá öðrum fjárfestingarbönkum. Alls vinna yfir 25.000 manns hjá Lehman. Samkvæmt heimildum markaðarins starfa einhverjir Íslendingar á skrifstofu Lehman í London.

Fjármálabloggsíðan Clusterstock staðhæfir hins vegar að andrúmsloftið á skrifstofum Lehman einkennist af stóískri ró:

"Verðbréfasalarnir vinna vinnuna sína eins og venjulega, og halda sér á réttum kili, en það er enginn að flýta sér neitt. Það hefur enginn stokkið út um glugga, en kyrrðinni fylgir uppgjöf og vænisýki."

Heimildamaður Clusterstock, sem vinnur hjá Lehman, segir að starfsmenn bankans séu sannfærðir um að "öll helvítis gatan vill að við förum á hausinn". Skortsölum var kennt um hrun Bear Stearns, og ekki ólíklegt að margir skortsalar séu nú að veðja á gjaldþrot Lehman.

Það er skiljanlegt að starfsmenn Lehman séu fullir övæntingar, því allt að 60 prósent launa þeirra eru í formi hlutabréfa í bankanum. Wall Street Journal hefur áætlað starfsmenn bankans, sem eiga sameiginlega 25 prósent í bankanum, hafi þegar tapað um 10 milljörðum dollara á hruni hlutabréfa bankans.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×