Jafnt hjá Fulham og City Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 6. desember 2008 14:39 Bobby Zamora í baráttuni við Tal Ben-Haim. Nordic Photos / Getty Images
Fulham og Manchester City gerðu í dag jafntefli í ensku úrvalsdeildinni, 1-1. Bæði mörkin voru skoruð í fyrri hálfleik. Benjani kom City yfir strax á sjöttu mínútu leiksins en Jimmy Bullard jafnaði metin á 27. mínútu. Roy Hodgson stillti upp sama byrjunarliði og gerði markalaust jafntefli við Aston Villa um síðustu helgi. Hins vegar voru Robinho og Micah Richards báðir fjarverandi hjá City vegna ökklameiðsla. Shaun Wright-Phillips var þó með en hann var tæpur fyrir leikinn. Benjani skoraði mark sitt með skalla eftir sendingu Pablo Zabaleta en varnarleikur Fulham var ekki upp á marga fiska þessar fyrstu mínútur leiksins. Bæði lið fengu ágæt færi en City var talsvert sterkara fyrstu mínúturnar. Leikmenn Fulham vildu þó fá víti áður en þeir jöfnuðu metin og höfðu talsvert til síns máls. Það var svo Bullard sem skoraði glæsilegt jöfnunarmark. Hann fékk sendingu frá Bobby Zamora og þrumaði knettinum í fjærhornið úr erfiðri stöðu í teignum. Fulham fékk svo tækifæri til að komast yfir er Andy Johnson lagði upp fínt færi fyrir Clint Dempsey en boltinn fór framhjá. Þannig hélt leikurinn áfram, leikmenn fengu ágæt færi en náðu ekki að skora. Joe Hart varði aukaspyrnu Bullard vel í síðari hálfleik og þá komst Zamora einnig nálægt því að skora í nokkur skipti. City fékk einnig sín færi undir lokin og átti Zabaleta ágætt skot sem Mark Schwarzer markvörður átti í mestum vandræðum með. City komst upp í þrettánda sæti úr því fimmtánda með stiginu en Fulham er enn í tíunda sæti með 20 stig. City er með átján.
Mest lesið Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Goðsögn fallin frá Enski boltinn Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Íslenski boltinn Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Fótbolti Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Fótbolti Var frústreraður vegna landsliðsins Fótbolti Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn Kærður af knattspyrnusambandinu Enski boltinn „Ég elska peninga“ Sport Fleiri fréttir United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg „Allir virðast elska hann“ „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Óttast að Isak hafi fótbrotnað Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ Sjá meira