Starfsmenn Lehman fullir örvæntingar 12. september 2008 09:26 Höfuðstöðvar Lehman Brothers, New York MYND/AFP
Bandaríska dagblaðið Wall Street Journal lýsir á forsíðu í morgun þeirri örvæntingu sem gripið hefur um sig í höfuðstöðvum fjárfestingabankans Lehman Brothers eftir allar tilraunir Richard Fuld, forstjóra bankans, til að finna kaupendur að hluta starfseminnar eða nýja hluthafa sem gætu lagt fram nægilegt fé til að mæta ævintýralegu tapi félagsins síðustu ársfjórðunga, hafa farið út um þúfurt. Að sögn blaðsins eru óbreyttir starfsmenn félagsins fullir vonleysis meðan stjórnendurnir leita logandi ljósi að kaupendum. Blaðamaður WSJ segist hafa orðið vitni að símtali starfsmanns Lehman þar sem hann sagði meðal annars "Þetta er búið maður... nema við finnum kaupendur á næstu 24 klukkutímunum, annars er þetta búið." Starfsmaðurinn neitaði að svara spurningum blaðamannsins sem segist hafa orðið vitni að öðrum álíka samtölum. Business Week segir starfsmenn Lehman nú leita sér að nýrri vinnu, og að stórir hópar starfsmanna hafi verið í samræðum við vini og kunningja hjá öðrum fjárfestingarbönkum. Alls vinna yfir 25.000 manns hjá Lehman. Samkvæmt heimildum markaðarins starfa einhverjir Íslendingar á skrifstofu Lehman í London. Fjármálabloggsíðan Clusterstock staðhæfir hins vegar að andrúmsloftið á skrifstofum Lehman einkennist af stóískri ró: "Verðbréfasalarnir vinna vinnuna sína eins og venjulega, og halda sér á réttum kili, en það er enginn að flýta sér neitt. Það hefur enginn stokkið út um glugga, en kyrrðinni fylgir uppgjöf og vænisýki." Heimildamaður Clusterstock, sem vinnur hjá Lehman, segir að starfsmenn bankans séu sannfærðir um að "öll helvítis gatan vill að við förum á hausinn". Skortsölum var kennt um hrun Bear Stearns, og ekki ólíklegt að margir skortsalar séu nú að veðja á gjaldþrot Lehman. Það er skiljanlegt að starfsmenn Lehman séu fullir övæntingar, því allt að 60 prósent launa þeirra eru í formi hlutabréfa í bankanum. Wall Street Journal hefur áætlað starfsmenn bankans, sem eiga sameiginlega 25 prósent í bankanum, hafi þegar tapað um 10 milljörðum dollara á hruni hlutabréfa bankans.
Mest lesið Hækka stýrivexti Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Viðskipti innlent Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Viðskipti erlent Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira