Wenger: Látið Ash og Sol í friði Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 21. desember 2007 18:11 Stuðningsmenn Arsenal halda á lofti platpeningum og hrópa fúkyrði að Ashley Cole, leikmanni Chelsea. Nordic Photos / AFP
Arsene Wenger hefur tekið undir með áskorun Sol Campbell að enska knattspyrnusambandið geri eitthvað í munnsöfnuði áhorfenda á knattspyrnuleikjum. Frá því að Campbell hringdi sjálfur í fréttastofu BBC á þriðjudaginn hafa leikmenn og knattspyrnustjórar tjáð sig um hegðun áhorfenda á knattspyrnuleikjum. Á leik Arsenal og Chelsea á sunnudaginn létu stuðningsmenn Arsenal Ashley Cole óspart heyra það enda fyrrum leikmaður Arsenal sem gekk til liðs við Chelsea sumarið 2006. Cole svaraði reyndar fyrir sig í leikslok en enska knattspyrnusambandið lét það óáreitt. Á laugardaginn mættust svo Portsmouth og Tottenham en stuðningsmenn síðarnefnda liðsins hafa ekki enn fyrirgefið Campbell fyrir að fara frá liðinu og ganga til liðs við erkifjendurna í Arsenal. „Staðreyndin er sú að ef leikmenn svara fyrir sig með því að sýna áhorfendum sama dónaskap og þeim sjálfum var sýndur lenda þeir í vandræðum og fá refsinguna. En ekkert er gert þegar áhorfendur láta öllum illum látum gagnvart leikmönnum. Það getur ekki verið sanngjarnt," sagði Wenger. Talsmaður enska knattspyrnusambandsins neitaði að tjá sig um ummæli Wenger. Hann vísaði hins vegar í fyrri yfirlýsingu enska knattspyrnusambandsins þar sem fram kemur að nú þegar eru til lög og reglur um þessi málefni. „Slík hegðun er ólögleg," sagði í yfirlýsingunni. „Einstök félög verða að vinna með lögreglunni til að framfylgja lögunum."
Mest lesið Frækinn sigur Englendinga á Azteca Fótbolti Maður dagsins á HM: Atvinnulaus hetja Noregs hætti við handbolta og skíði Fótbolti Gagnrýnir ákvörðun FIFA: „Skítafýla af þessu“ Fótbolti Henderson meiddist illa á hendi í fagnaðarlátunum: „Þetta lítur illa út“ Fótbolti Yfirlýsing UEFA: Óskiljanleg ákvörðun sem grefur undan trúverðugleika HM Fótbolti Ronaldo á sínu síðasta HM: „Þið hafið reynt að drepa mig í 23 ár“ Fótbolti Banabiti Brassa var þegar Ancelotti setti Neymar inn á Fótbolti Leikmenn Mexíkó þurftu að skila lúxusúrunum Fótbolti Týndur í tíu daga: Ætlaði að fara á HM en skilaði sér aldrei á staðinn Sport Leik Mexíkó og Englands seinkað um klukkutíma Fótbolti Fleiri fréttir Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Hefja viðræður um kaup á Tonali Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton Tekur við Crystal Palace eftir frábært tímabil í Frakklandi Elta Manchester United allt næsta tímabil Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Sjá meira