Úrskurður í deilu Microsoft og ESB á morgun 16. september 2007 17:54 Bill Gates, eigandi Microsoft, bíður þess eflaust spenntur hver úrskurður dómstóls ESB verður. MYND/AP
Dómstóll á vegum Evrópusambandsins kveður upp úrskurð á morgun um það hvort bandaríska hugbúnaðarfyrirtækið Microsoft hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína á sviði stýrikerfa. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins komst að þeirri niðurstöðu fyrir þremur árum að Microsoft hefði notað Windows-stýrikerfi sitt, sem er að finna í 95 prósentum tölva í heiminum, til þess að kæfa samkeppni á sviði hugbúnaðar fyrir netþjóna og fjölmiðlun. Félagið hefði meðal annars hengt Windows Media Player við Windows-stýrrikerfið sem ESB taldi ólöglegt. Var félagið sektað um nærri 500 milljónir evra, jafnvirði nærri 45 milljarða króna, vegna þessa og gert að selja Windows án Windows Media Player. Þessari ákvörðun áfrýjaði Microsoft til sérstaks dómstóls og taldi að framkvæmastjórn ESB bryti gegn rétti fyrirtækisins til framleiðslu á hugbúnaði. Dómstóllinn kveður upp úrskurð sinn í fyrramálið klukkan hálfátta að íslenskum tíma.
Mest lesið Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Viðskipti innlent Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Viðskipti innlent Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Viðskipti erlent Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Viðskipti innlent Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Viðskipti erlent Fleiri fréttir Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira