Hlutabréf í Ericsson hríðfalla vegna slakrar afkomu 16. október 2007 12:05 MYND/Pjetur
Gengi bréfa Ericsson, stærsta símaframleiðanda heims, féll um 26 prósent í morgun í kjölfar yfirlýsingar um að sala og hagnaður á þriðja ársfjórðungi væri undir væntingum. Hlutabréf sænska risanns náðu í morgun þriggja ára lágmarki á markaði. Sala fyrirtækisins hefur hrapað um 9 prósent frá öðrum ársfjórðungi sem er mun verri niðurstaða en bæði stjórnendur fyrirtækisins sem og markaðurinn gerðu ráð fyrir. Carl Henric Svanberg, forstjóri og stjórnarformaður Ericsson, segir ástæðu fyrir minni sölu einfaldlega vera aukna samkeppni á markaði. Hann segir þó fjórða ársfjórðung verða í samræmi við áætlanir og árið 2008 líti ágætlega út fyrir fyrirtækið. Hagnaður Ericsson milli ára minnkaði úr 6,2 milljörðum sænskra króna sem jafngildir um 58 milljörðum íslenskra króna í 4 milljarða sænskra króna eða rúmar 37,5 milljarða íslenskra króna. Fréttirnar höfðu áhrif á aðra símaframleiðendur en gengi bréfa Nokia féll um 3,6 prósent í morgun.
Mest lesið Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Viðskipti innlent GameStop vill kaupa eBay Viðskipti erlent Ísland ekki jaðarmarkaður segir framkvæmdastjóri BMW Samstarf Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Viðskipti innlent Einn ríkasti maður Noregs látinn Viðskipti erlent Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira