Ryanair stofnar félag 19. apríl 2007 07:00 Michael O‘Leary forstjóri Ryanair er sagður hafa í hyggju að stofna nýtt lággjaldaflugfélag og taka þátt í verðstríðinu á flugleiðunum á milli Bandaríkjanna og Evrópu á næsta ári.
Micheal O‘Leary, forstjóri írska lággjaldaflugfélagsins Ryanair, er sagður velta því alvarlega fyrir sér að stofna lággjaldaflugfélag sem muni sinna flugi á milli Evrópu og Bandaríkjanna á næsta ári. Ástæðan er samningur á milli Bandaríkjanna og Evrópusambandsins um auknar heimildir flugfélaga til að fljúga álfanna á milli. Mörg flugfélög sjá fram á verðstríð á flugleiðunum og spá því að farmiðaverð yfir hafið muni hríðlækka í kjölfarið. Breska fréttastofan Sky segir að flugfélagið sem O‘Leary íhugar að setja á laggirnar muni ekki fljúga undir merkjum Ryanair. Haft hefur verið eftir O‘Leary, að verðmiðinn geti farið allt niður í sjö pund, jafnvirði rétt rúmra 900 króna. Markaðsaðilar telja verðið alltof lágt. Talsverð samkeppni liggur þegar í loftinu því annað breskt flugfélag, Zoom Airlines, hefur í bígerð að fljúga daglega á milli Gatwick og John F. Kenn-edy flugvallarins í New York þegar samningurinn tekur gildi á næsta ári. Gert er ráð fyrir því að fyrstu vélar Zoom Airlines fari í loftið undir lok júní á næsta ári og mun farmiðaverð liggja í 129 pundum, tæpum 17 þúsund íslenskum krónum.
Mest lesið Fjármálaráðherra veldur fyrrverandi varaformanni Viðreisnar vonbrigðum Viðskipti innlent Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Viðskipti innlent Alvöru þægindi eftir átján holur Samstarf Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Viðskipti innlent Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Atvinnulíf Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Viðskipti erlent Sögulegri skráningu SpaceX lokið Viðskipti erlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Heimsins fyrsti billjónamæringur Sögulegri skráningu SpaceX lokið Hefja rannsókn á Ryanair Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Rannsaka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka foreldra fyrir að sitja með börnum sínum OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira