Viðskipti erlent

Nasdaq hefnir sín á LSE

Robert Greifeld, forstjóri Nasdaq, er sagður ætla að beita sér gegn samstarfi LSE við aðra hlutabréfamarkaði á alþjóðlegum vettvangi.
Robert Greifeld, forstjóri Nasdaq, er sagður ætla að beita sér gegn samstarfi LSE við aðra hlutabréfamarkaði á alþjóðlegum vettvangi. MYND/AFP

Breska kauphöllin í Lundúnum (LSE) er sögð hafa hug á samstarfi við þýsku kauphöllina í Frankfurt og samnorrænu kauphallarsamstæðuna OMX, sem rekur kauphallir í Eystrasaltslöndunum og á Norðurlöndunum, þar á meðal hér.

Ólíklegt er að af samstarfi LSE verði í bráð því stjórn bandaríska hlutabréfamarkaðarins Nasdaq er sögð ætla að gera allt sem í hennar valdi standi til að koma í veg fyrir samstarf LSE við hlutabréfamarkaði á alþjóðlegum vettvangi.

Ástæðan fyrir þessu er andstaða Cörlu Furse, forstjóra LSE, gegn yfirtökutilboði Nasdaq á síðasta ári og í byrjun þessa árs. Furse fékk mikið lof fyrir afstöðu sína. Það virðist koma í bak hennar nú því Nasdaq tryggði sér tæpan 30 prósenta hlut í breska markaðnum á meðan yfirtökutilraununum stóð og mun nýta eignastöðuna til að hefna sín, að sögn breska blaðsins Financial Mail.

Nasdaq hefur leitað eftir samstarfi við kauphallir á meginlandi Evrópu síðastliðin tvö ár og er sagt hafa gert tilboð í OMX upp á 23 milljarða sænskra króna, jafnvirði 221 milljarðs íslenskra króna, í síðustu viku. Talsmaður OMX vísaði orðróminum á bug og sagði stjórnina eiga í viðræðum við nokkrar kauphallir um samstarf á ýmsum sviðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×