Karlar líklegri til að vinna 13. júlí 2007 00:45 Rannsakaði fæðingarorlof Bryndís Jónsdóttir vann viðamikla rannsókn á fæðingarorlofi og er sjálf í slíku orlofi í dag. MYND/Vilhelm
Tæplega fjórðungur fólks í fæðingarorlofi sinnir starfi sínu að einhverju leyti á meðan á orlofi stendur. Yfirstjórnendur eru líklegastir til að taka vinnuna með sér í orlofið; gera það í 65 prósentum tilvika. Þetta kemur fram í nýlegri rannsókn Bryndísar Jónsdóttur, sem var unnin sem hluti af meistaraverkefni hennar í mannauðsstjórnun við Háskóla Íslands. Um 2.400 manns svöruðu spurningum hennar um eigið fæðingarorlof. Um 35 prósent karla sögðust hafa unnið í fæðingarorlofinu, en 17 prósent kvenna. Stjórnendur, sérfræðingar, bændur og sjómenn voru líklegastir til að hafa sinnt starfinu meðfram orlofinu. „Ég hef ekki hugmynd um það út frá þessari rannsókn hvort þetta fólk fær greitt fyrir vinnuna, eða hvort það er að þessu til þess að missa ekki störf sín eða líða ekki illa í orlofinu. Þetta á ekki að vera svona, ef fólki er ekki greitt fyrir á það ekki að vinna í orlofinu og það er lögbrot að greiða fyrir vinnu í fæðingarorlofi ef fólk er á 100 prósent greiðslum frá fæðingarorlofssjóði,“ segir Bryndís. Um muninn á kynjunum segir Bryndís að karlar taki almennt styttra fæðingarorlof en konur og búti auk þess orlofið frekar niður. Þar með sé algengara að ekki sé ráðið í störf þeirra á meðan á fæðingarorlofi standi og því taki þeir gjarnan einhverja ábyrgð með sér í fæðingarorlofið, eða séu í það minnsta tiltækir fyrir vinnuveitandann.
Mest lesið Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Atvinnulíf Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Umsóknum synjað og kurr í greininni Viðskipti innlent Jóhann Ingi til Securitas Viðskipti innlent Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Viðskipti innlent Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Viðskipti innlent Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Viðskipti innlent Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Viðskipti innlent Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Norðmenn lækka álögur á eldsneyti til að létta undir með landsmönnum Apple hættir framleiðslu Mac Pro-borðtölvunnar Tímamótadómur: Fyrirtækin sjálf ábyrg en ekki notendur OpenAI kippir Sora úr sambandi Orkukreppan vegna Írans trompar öll fyrri skakkaföll Boðar fínstillingu á ETS-kerfinu á næstu dögum Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Hvetja ESB til að láta ekki undan þrýstingi á ETS-kerfið Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Sjá meira