Enn eitt tapið hjá Derby Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 30. desember 2007 15:23 Brad Friedel fagnar fyrsta marki Blackburn skömmu eftir að hann varði vítaspyrnu Derby. Nordic Photos / Getty Images
Derby tapaði í dag fyrir Blackburn í fyrri leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Derby komst yfir en tapaði á endanum 2-1. Í stöðunni 1-0 fékk Derby reyndar vítaspyrnu og hefði getað komist í 2-0 en Brad Friedel varði spyrnu Steve Howard. Í kjölfarið skoraði Blackburn tvö mörk á næstu fimm mínútum og dugði það til á endanum. Stephen Bywater á enn við meiðsli að stríða og því stóð hinn ungi Lewis Price enn í marki Derby. Þeir eru reyndar nokkuð margir í liði Derby sem eru meiddir um þessar mundir. Hjá Blackburn komu þeir Tugay og Aaron Mokoena í stað David Dunn og Steven Reid í byrjunarliðið sem og þeir Benni McCarthy og Stephen Warnock. Hvorugt liðið hefur átt góðu gengi að fagna undanfarið en Blackburn hafði ekki unnið síðustu fjóra leiki sína í deildinni. Roque Santa Cruz hefur reyndar skorað sjö mörk í þessum fjórum leikjum en það hefur skilað fáum stigum. Það var einmitt Santa Cruz sem var fyrstur til að koma knettinum í netið eftir fyrirgjöf David Bentley frá vinstri. Markið var hins vegar dæmt af þar sem boltinn fór út fyrir endalínuna og aftur inn á völlinn í fyrirgjöf Bentley. En Blackburn var þó óumdeilanlega með undirtökin í leiknum og því kom það nokkuð gegn gangi leiksins þegar að Matt Oakley kom Derby yfir. Hann fékk fína sendingu frá Giles Barnes og náði góðu skoti að marki sem hafnaði í netinu. Derby fékk svo gullið tækifæri til að komast í 2-0 þegar að Ryan Nelsen er dæmdur brotlegur eftir viðskipti sín við Kenny Miller. Steven Howard tók spyrnuna en hún var nokkuð slök og Brad Friedel varði vítaspyrnuna. Ekki leið nema rúm mínúta þar til Blackburn jafnaði metin og í þetta sinn skoraði Roque Santa Cruz fyllilega löglegt mark. Benni McCarthy átti skot að marki sem Price varði en hann hélt ekki boltanum sem datt beint fyrir fætur Santa Cruz sem skoraði af stuttu færi. Þremur mínútum síðar kom svo rothöggið er David Bentley skoraði annað mark Blackburn með laglegu skoti utan vítateigs. Leikurinn var fjörlegur í síðari hálfleik þó engin mörk hafi verið skoruð. Bæði lið fengu sín færi til að skora en allt kom fyrir ekki.
Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu Fótbolti Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Íslenski boltinn Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Dagskráin í dag: Hvaða lið fellur úr Bestu deildinni? Sport Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Handbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Fleiri fréttir City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Sjá meira