Stýrivextir hækkaðir á evrusvæðinu 9. mars 2007 05:45
Evrópski seðlabankinn ákvað í gær að hækka stýrivexti um 25 punkta með það fyrir augum að draga úr verðbólgu á evrusvæðinu. Stýrivextirnir standa nú í 3,75 prósentum og hafa þeir ekki verið hærri í rúm fimm ár. Á sama tíma ákvað Englandsbanki að halda stýrivöxtum óbreyttum í 5,25 prósentum. Greinendur bjuggust flestir við þessum niðurstöðum. Jean-Claude Trichet, bankastjóri evrópska seðlabankans, hefur ítrekað sagt að bankinn muni fylgjast grannt með verðbólguþróun í evrulöndunum þrettán og muni bregðast við sýnist honum sem verðbólguhorfur séu að versna. Þrátt fyrir þetta hefur nokkuð dregið úr verðbólgu en hún mældist 1,8 prósent í janúar samanborið við 1,9 prósent í lok síðasta árs. Það er 0,2 prósentum undir verðbólgumarkmiðum bankans. Greinendur segja engu að síður líkur á frekari hækkun vaxta á evrusvæðinu á árinu og benda á að allt stefni í að vextirnir muni standa nær fjórum prósentum undir lok árs. Þeir útiloka þó ekki að stýrivextir hækki á næstunni í Bretlandi þrátt fyrir 0,3 prósentustiga verðbólgulækkun í febrúar sem er nokkuð yfir verðbólgumarkmiðum Englandsbanka. Verðbólga mældist þrjú prósent í janúar og höfðu sambærilegar tölur ekki sést í ellefu ár.
Mest lesið Gervihjónabönd: Að eiga vinnueiginmann eða vinnueiginkonu Atvinnulíf Heiðrún Lind kaupir í Sýn Viðskipti innlent Eldri stjórnendur sætti sig oftar við slæma hegðun og frammistöðu Viðskipti innlent Ráðin forstöðukona markaðsmála hjá Olís Viðskipti innlent Elín Tinna nýr framkvæmdastjóri 66°Norður á Íslandi Viðskipti innlent Farþegum til Íslands fjölgaði um 21 prósent Viðskipti innlent Framkvæmdastjóri Olís: „Ekki hleypa henni að græjunum“ Atvinnulíf Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Hryllingssögur og dæmi: „Slúbbertar halda heilu stofnunum í gíslingu“ Atvinnulíf Brutu lög við söluna á Íslandsbanka og greiða yfir 60 milljónir í sektir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vilja að Musk fái allt að 122 billjónir á næsta áratug Vara við „Lafufu“ Framkvæmdastjóri Nestlé látinn fara í kjölfar ástarsambands Frakkar þurfi mögulega að leita aðstoðar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins Risinn sem var of stór til að falla er fallinn Facebook gagnrýnt fyrir að leyfa gervigreind að reyna við börn Vilja ekkert með áfengi nágranna sinna hafa Íslensku KFC-feðgarnir í Danmörku gjaldþrota Kynntu nýja útgáfu ChatGPT: „Þetta er eins og að tala við sérfræðing“ Stærsti olíu- og gasfundur olíurisa í 25 ár Tíu prósenta tollur á færeyskar vörur Leist ekki á hagtölur og rak yfirmann stofnunarinnar Sjá meira