Vanskil valda vandræðum 19. júlí 2007 14:56 Áhrif vanskil áhættusamra húsnæðislána í Bandaríkjunum setja nú mark sitt á fjármálaheiminn vestra.
Áhrif vanskila áhættusamra húsnæðislána í Bandaríkjunum setja nú mark sitt á fjármálaheiminn vestra. Vanskilin má rekja til þess að fjármálastofnanir hafa í uppgangi síðustu ára boðið húsnæðislán á hagstæðum kjörum til handa viðskiptavinum með litla greiðslugetu og litlar eða engar eignir. Vanskil á þessum fasteignalánum samfara kælingu á bandaríska húsnæðismarkaðinum hefur komið illa við lánveitendur. Frá þessu segir í Morgunkorni Glitnis. Áhrifanna gætir víðar en hjá þeim fjármálastofnunum sem veittu lánin. Stofnanir og fjárfestar hafa keypt skuldabréf annarra lánastofnana þar sem húsnæðislán þessi eru undirliggjandi eign. Skuldabréfin hafa lækkað mikið í verði og valdið miklum afskriftum hjá fjölda fjármálafyrirtækja. Þessi skuldabréf eru nú illseljanleg og líkur á að eigendur þessara bréfa verði að afskrifa þau í bókum sínum. Tap vegna þessara lána gæti því átt eftir að koma fram víðar þegar líður á árið. Lánafyrirtæki hafa nú minnkað aðgang að lánsfé sem gerir einstaklingum erfiðara fyrir að kaupa húsnæði. Hægagangur hefur einkennt húsnæðismarkað að undanförnu og fasteignaverð lækkað og áhyggjur eru af því að það geti leitt til kreppu í bandarísku efnahagslífi.
Mest lesið Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Viðskipti innlent Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Viðskipti innlent GameStop vill kaupa eBay Viðskipti erlent Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira