Formúla 1

Raikkönen: Misstum aldrei trúna

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kimi Raikkönen fagnar sigri sínum í dag.
Kimi Raikkönen fagnar sigri sínum í dag. Nordic Photos / AFP

Kimi Raikkönen sagði eftir sigurinn í Brasilíu í dag að hann og lið sitt hefðu aldrei misst trúna á því að liðið gæti staðið upp sem sigurvegari.

„Það er rétt að á ákveðnum tímapunkti á tímabilinu var staðan okkar ekki góð en við höfðum alltaf trú á þessu. Við gáfumst heldur ekki upp í dag. Ég þarf að þakka öllu liðinu fyrir. Það stóð sig ekki bara vel í dag heldur hefur það staðið sig vel allt tímabilið," sagði Raikkönen.

Finninn fljúgandi stóð undir nafni í dag er hann bar sigur úr býtum í brasilíska kappakstrinum og um leið í stigakeppni ökuþóra í Formúlu 1. Keppinautar hans um titilinn, ökumenn McLaren, urðu að játa sig sigraða.

Fernando Alonso og Lewis Hamilton fengu báðir 109 stig og voru stigi á eftir Raikkönen.

Raikkönen getur líka þakkað Felipe Massa sigurinn því sú staðreynd að hann náði öðru sæti í dag gerði það að verkum að Alonso gat ekki náð Raikkönen að stigum.

„Það var líka mikil hjálp í Felipe Massa. Ég vil líka þakka stuðningsaðilunum fyrir vel unnin störf."

Eins og lokastaðan í stigakeppninni gefut til kynna var spennan mikil í dag. Lewis Hamilton hafnaði í sjöunda sæti en hefði þurft að lenda í fimmta sæti til að hirða titilinn af Raikkönen.

Það þýddi að þó svo að Raikkönen hafi komið fyrstur í mark gat hann ekki leyft sér að fagna fyrr en að í ljós kom í hvaða sæti Hamilton hafnaði.

„Þetta virtist ætla að taka svo langan tíma en þegar staðfestingin kom var frábært að heyra það. Ég mun svo sannarlega njóta sigursins og í dag er ég afar hamingjusamur maður."

Ánægður fyrir hönd liðsins

Felipe Massa sætti sig við niðurstöðuna þó hann hefði sjálfsagt viljað vinna á sínum heimaslóðum, á Interlagos-brautinni í Brasilíu.

„Ég er mjög ánægður fyrir hönd liðsins. Því miður var ég ekki með í baráttunni um meistaratitilinn þegar það kom að þessari keppni. En ég er ánægður fyrir hönd liðsins. Ferrari vann titilinn og er ég ánægður að ég lagði mitt af mörkum í því. Vonandi verð ég einhverntímann í þessari stöðu en núna samgleðst ég Kimi."

Hann segir að öll umdeildu atvik tímabilsins, eins og njósnamálið, hafi sett sitt mark á keppnina. „Það var við hæfi að þessu lyki svona."

Frábærar minningar

Fernando Alonso var auðmjúkur í tapi sínu í dag en hann varð að láta heimsmeistaratitil sinn af hendi.

„Ég hef alltaf sagt að sá sem fær flest stig á tímabilinu er verðskuldaður sigurvegari. Þess vegna óska ég Kimi til hamingju."

Hann sagði að keppnin hefði verið mjög erfið og að þeir hafi vitað vel af því fyrirfram. „Vegna vandræða Lewis var ljóst að þriðja sætið myndi ekki duga mér ef Ferrari-mennirnir yrðu í fyrsta og öðru sæti."

Miklar deilur hafa verið um ökuþóra McLaren og ekki síst Alonso. Hann þykir vera svarti sauðurinn í liði McLaren.

„Öllum er kunnugt um þau vandamál sem ég lenti í á tímabilinu. Það er ekkert leyndarmál. Við reyndum þó að vinna eins vel saman og kostur var. En ég var með frábæran bíl á þessu tímabili og minningarnar frá þessu ári eru mjög góðar. Mér líður mjög vel."

Kimi aldrei ánægðari

Kimi Raikkönen hóf feril sinn hjá McLaren en skipti yfir til Ferrari fyrir þetta tímabil. Hann virtist gefa í skyn eftir keppnina að það hafi verið mikið skref til batnaðar.

„Mér hefur aldrei liðið betur en á þessu tímabili. Þetta var það sem ég vildi ná og allt eftir þetta verður bara bónus."

Hann var beðin um að rekja feril sinn, allt frá því að hann tók sín fyrstu skref í íþróttinni.

„Það er mjög erfitt að koma orðum að þessu. Ég hafði ekki mikið á milli handanna í upphafi en fjölskyldan mín og vinir hafa ætíð haft mikla trú á mér og stutt mig. Það er þeirra vegna sem ég er hér í dag. Hjá Ferrari erum við líka með frábært lið og við höfum alltaf haft trú á því sem við vorum að gera, jafnvel þegar aðrir voru búnir að afskrifa okkur. Ég verð því að þakka liðinu fyrir enn og aftur."


Tengdar fréttir

Kimi Raikkönen heimsmeistari

Kimi Raikkönen er heimsmeistari ökuþóra í Formúlu 1 eftir sigur í ótrúlegri keppni í Brasilíu í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×