Formúla 1

Kimi Raikkönen heimsmeistari

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kimi Raikkönen fagnar sigrinum í dag. Fernando Alonso er honum á vinstri hönd.
Kimi Raikkönen fagnar sigrinum í dag. Fernando Alonso er honum á vinstri hönd. Nordic Photos / AFP

Kimi Raikkönen er heimsmeistari ökuþóra í Formúlu 1 eftir sigur í ótrúlegri keppni í Brasilíu í dag.

Hann vann keppnina eftir að hafa tekið fram úr félaga sínum hjá Ferrari, Felipe Massa, eftir lokaviðgerðarhlé sitt.

Lewis Hamilton náði aðeins sjöunda sæti eftir mikið klúður í upphafi keppninnar. Fernando Alonso náði þriðja sæti en það dugði ekki til.

Felipe Massa var á ráspól í dag en hafnaði í öðru sæti.

Lokastaðan í stigakeppni ökumanna var sú að Raikkönen fékk 110 stig, Hamilton 109 stig sem og Alonso. Hamilton og Alonso unnu jafn margar keppnir á árinu en Hamilton varð oftar í öðru sæti og fékk því silfrið í stigakeppninni.

Keppnin var annars ævintýralega spennandi.

Massa var fyrstur á ráspól, Hamilton annar, Raikkönen þriðji og Alonso fjórði. Hamilton hafði forystu í stigakeppni ökumanna með 107 stig. Alonso var með 103 stig og Raikkönen 100 stig.

Strax frá fyrstu sekúndu var spennan gríðarlega mikil. Massa færði sig strax í veg fyrir Hamilton sem varð til þess að Raikkönen komst fram úr Bretanum.

Hamilton missti í kjölfarið Alonso fram úr sér og varð svo mikið á að hann læsti bremsunum sínum og missti stjórn á bílnum í andartak. Fyrir vikið datt hann niður í sjöunda sæti.

Á sjötta hring tók hann fram úr Heidfeld sem var í sjötta sæti. Eins og staðan var þá (Raikkönen annar, Alonso þriðji) var Hamilton á góðri leið með að verða meistari.

En þá missti bíllinn skyndilega afl og Hamilton datt niður í átjánda sæti.

Þetta þýddi að Alonso var á leið með að vinna heimsmeistaratitlinn. En ef Raikkönen kæmist fram úr liðsfélaga sínum, Felipe Massa, yrði hann heimsmeistari. Strax voru því getgátur um að Massa myndi hleypa Raikkönen fram úr sér.

Hamilton setti allt á fullt og var aðeins örfáa hringi að vinna sig upp í tíunda sæti. Þá tók hann viðgerðarhlé og fékk lítið bensín og mýkstu dekkin. Hann kom út í fjórtánda sæti, vann sig upp um fimm sæti á fimmtán hringjum þar til hann kom aftur inn á viðgerðarsvæðið.

Alonso náði að halda sinni stöðu í þriðja sæti keppninnar þrátt fyrir harða keppni við Robert Kubica. Pólverjinn var þó á annarri keppnisáætlun og þó svo að hann hefði tekið fram úr Alonso um miðbik keppninnar kom það ekki að sök á endanum.

Massa fór inn í síðasta þjónustuhléið nokkrum hringjum á undan Raikkönen. Finninn reyndi hvað hann gat til að nýta tækifærið og vinna sér inn nægan tíma til að koma sér fram úr Massa. Það gekk upp og náði Raikkönen að koma sér út á brautina á undan Massa eftir sitt þjónustuhlé, þó það hefði staðið tæpt.

Þegar þarna var komið var Hamilton í áttunda sæti en átti þó eftir að stoppa einu sinni enn á viðgerðarsvæðinu. Þetta virtist því afar vonlítið því hann hefði þurft að ná fimmta sæti til að tryggja sér titilinn.

Hamilton tók sitt lokahlé þegar fjórtán hringir af keppninni og kom hann út í níunda sæti.

Hann var reyndar ekki nema nokkrar sekúndur að taka fram úr David Coulthard sem var í áttunda sæti. En það dugði ekki til, samkvæmt stöðunni í keppninni þá hefði sjöunda sætið þurft til að skáka Alonso og fimmta sætið til að komast fram úr Raikkönen og tryggja titilinn.

Hamilton náði reyndar að koma sér upp í sjöunda sætið en það dugði ekki til að vinna heimsmeistaratitilinn. Hann náði reyndar þá öðru sætinu í stigakeppni ökuþóra sem fyrr segir.

Kimi Raikkönen gaf allt í botn í lokin. Hann ætlaði ekki að gefa neitt eftir síðustu hringina og ók hraðast allra á lokasprettinum.

Þeir voru fáir sem reiknuðu með að Raikkönen myndi standa uppi sem sigurvegari en þökk sé hjálp Massa og klúðri Hamilton í dag hirti hann titilinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×