Heimsmarkaðsverð á kaffi mjög hátt 16. október 2007 16:55
Heimsmarkaðsverð á kaffibaunum náði tíu ára hámarki fyrir síðustu helgi vegna ótta um frekari uppskerubrest í Brasilíu, stærsta framleiðanda kaffibauna. Framleiðslan í Brasilíu dróst saman um 23% á síðasta uppskerutímabili vegna þurrka og nam 32,6 milljónum poka. Greint er frá þessu í Hálf fimm fréttum Kaupþings banka. Þarsegir að heimsframleiðslan var um 114 milljónir poka, sex prósentustigum minni en árið áður. Ekki bætir úr skák að óvíst er um gæði uppskerunnar í Víetnam, öðrum stærsta framleiðandanum. Eitt tonn af kaffibaunum (Robusta), sem koma til afhendingar í nóvember, fór hæst í 2.234 Bandaríkjadali fyrir helgi en verðið hefur verið að síga niður á síðustu dögum vegna væntinga um að taki að rigna í helstu uppskerusvæðum í Brasilíu. Nestlé og Procter & Gamble, tveir af stærstu kaffiframleiðendum heims, hafa brugðist við minnkandi framboði kaffibauna með verðhækkunum.Financial Times greinir frá því að eftirspurn eftir kaffi hafi stóraukist meðal ungs fólks í gömlu iðnríkjunum. Á undanförnum fimm árum hefur eftirspurn eftir kaffi aukist um 8% í Bandaríkjunum og næstum því 6% í Evrópu. Í Bretlandi jókst neyslan um 35% á milli áranna 2002-2006 en kaffineysla þar hefur verið tiltölulega lág í sögulegu ljósi. Þessa aukningu vilja menn þakka kaffihúsakeðjum á borð við Starbucks sem eru að vaxa hratt.
Mest lesið Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Viðskipti innlent Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Viðskipti innlent Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Viðskipti innlent Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Viðskipti erlent Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Regluleg viðskipti hjá Orkunni skila viðskiptavinum raunverulegum ávinningi Samstarf Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Viðskipti innlent Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Viðskipti innlent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Viðskipti innlent OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Viðskipti erlent Fleiri fréttir OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira