Enn þröngt um lausafé á fjármálamörkuðum 3. október 2007 12:08
Þrátt fyrir að losnað hafi um lausafé á ýmsum helstu fjármálamörkuðum heims er aðgengi að lausafé mun takmarkaðra en var fyrir óróann sem hófst í júlílok, og vextir á skammtímalánum enn háir. Álag á helstu millibankamörkuðum, miðað við stýrivexti, er þannig enn mun hærra en var í júlílok og raunar er álag á 3 mánaða innlánsvexti í Bandaríkjum og á evrusvæði með því hæsta sem verið hefur frá því sviptingarnar hófust. Fjallað er um málið í Morgunkorni Glitnis og þar segir að tilkynningar nokkurra af stærstu bönkum heims um neikvæð áhrif af húsnæðislánakrísunni í Bandaríkjunum og lausafjárþrengingum virðast fremur hafa haft jákvæð áhrif en neikvæð á hlutabréfamarkað. Lánsfjármarkaðir hafa tekið nokkuð annan pól í hæðina og sér í lagi virðist vaxtaálag í Bandaríkjunum hafa hækkað nokkuð það sem af er viku. Áhrif lánavandræðanna í Bandaríkjunum á húsnæðismarkað þar í landi eru farin að koma fram í auknum mæli, en þó er talið að langur tími muni líða þar til heildaráhrif á bandarískt hagkerfi verða ljós. Líklegt er að talsvert langan tíma muni taka að vinda að fullu ofan af þeirri lausafjárþurrð sem skapaðist í kjölfar óróans á 3. ársfjórðungi, og raunar gera margir ráð fyrir því að greitt aðgengi að lánsfé á lágu áhættuálagi sem einkennt hefur undanfarin misseri á alþjóðamörkuðum sé liðin tíð, að minnsta kosti í bili.
Mest lesið Ný verslun nærri þúsund fermetrum stærri en sú gamla Neytendur Hvað þurfum við að eiga mikið til að geta hætt að vinna? Viðskipti innlent Samherjahjónin fyrrverandi langtekjuhæst Viðskipti innlent Melabúðarbræður með hálfan milljarð í fyrra Viðskipti innlent Skattakóngurinn flytur úr landi Viðskipti innlent Framtíð tannlækninga og gervigreindar – kynntu þér Oraxs Samstarf Verðmunur getur verið allt að 28 prósent Neytendur Setja tvo milljarða til í fiskeldið sem tapar hundruðum milljóna Viðskipti innlent Framkvæmdastjóri Smáríkisins ákærður Viðskipti innlent Keyra á orkudrykkjamarkaðinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Facebook gagnrýnt fyrir að leyfa gervigreind að reyna við börn Vilja ekkert með áfengi nágranna sinna hafa Íslensku KFC-feðgarnir í Danmörku gjaldþrota Kynntu nýja útgáfu ChatGPT: „Þetta er eins og að tala við sérfræðing“ Stærsti olíu- og gasfundur olíurisa í 25 ár Tíu prósenta tollur á færeyskar vörur Leist ekki á hagtölur og rak yfirmann stofnunarinnar Hagnaðist um 2,2 billjónir króna Gengi Novo Nordisk steypist niður Samkomulagið það besta mögulega í erfiðum aðstæðum Stærsti olíufundur Evrópu í áratug í Póllandi Hampiðjan kaupir ástralskan kaðlaframleiðanda Japanskir bílaframleiðendur í skýjunum eftir tollasamkomulag Hagnaðurinn af Labubu sagður hafa aukist um 350 prósent Hótar þrjátíu prósenta tolli á ESB Hótar Kanadamönnum hærri tollgjöldum Forstjóri X hættir óvænt Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Sjá meira