Hagnaður JJB Sports dregst saman 28. september 2007 16:57
Sportvöruverslanakeðjan JJB Sports skilaði 38,3% minni hagnaði á fyrri hluta rekstrarársins en á sama tímabili í fyrra. Félagið, sem rekur 420 verslanir á Bretlandseyjum, hagnaðist um 11,2 milljónir punda fyrir skatta, sem svarar til 1,4 milljarða króna, samanborið við 18,2 milljónir punda árið 2006. JJB Sports er 30% í eigu Exista og forstjórans Chris Ronnie. Fjallað er um málið í Hálf fimm fréttum Kaupþings banka. Þar segir m.a. að erfiðar markaðsaðstæður settu svip sinn á uppgjör félagsins en velta dróst saman um 4,3% milli ára. Það hafði sín áhrif að engin stórkeppni í fótbolta fór fram í sumar eins og í fyrra þegar HM var haldið í Þýskalandi, en allur varningur, sem tengist fótbolta á einn eða annan hátt, tekur jafnan mikinn sölukipp í kringum slíka atburði. Uppgjörið er undir væntingum stjórnenda félagsins en fyrr í september gaf það út neikvæða afkomuviðvörun sem olli nærri 30% gengislækkun á skömmum tíma. Þeir reikna með að seinni hluti ársins, þar á meðal jólaverslunin, verði í takt við síðasta ár. Hlutabréf í JJB Sports höfðu hækkað um sex prósent í Kauphöllinni í Lundúnum í dag. JJB Sports er sem fyrr segir 30% í eigu Exista og forstjórans Chris Ronnie. Hlutinn keyptu þeir í júní á 275 pens á hvern hlut fyrir um 16,3 milljarða króna á þeim tíma en gengið stendur nú í 154 pensum hlut. Nemur lækkunin því um 43% á þremur og hálfum mánuði..
Mest lesið OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Viðskipti erlent Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Viðskipti innlent Regluleg viðskipti hjá Orkunni skila viðskiptavinum raunverulegum ávinningi Samstarf Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Viðskipti innlent Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Viðskipti innlent Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Viðskipti innlent Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Viðskipti erlent Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Viðskipti innlent Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Viðskipti innlent Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Fleiri fréttir OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira