Stærsta húsnæðislánafyrirtæki BNA dregur saman seglin 20. ágúst 2007 12:04 MYND/Gety Images
Countrywide Financial, stærsta húsnæðislánafyrirtæki Bandaríkjanna, er byrjað að segja upp starfsfólki til þess að reyna að takast á við tap sem fyrirtækið hefur orðið fyrir í tengslum við svokölluð annars flokks lán. Eins og fram hefur komið í fréttum hafa vanskil á slíkum lánum, sem veitt hafa verið til viðskiptavina með litla greiðslugetu, aukist að undanförnu samfara hækkandi stýrivöxtum í Bandaríkjunum. Það hefur komið niður á bandarískum lánafyrirtækjum og hafði auk þess áhrif á markaði víða um heim. Hlutabréf í Countrywide Finacial lækkuðu mikið í síðustu viku vegna þessara fregna og þá sagði greiningarfyrirtækið Merrill Lynch að hætta væri á því að fyrirtækið yrði gjaldþrota vegna þessa og samdráttar á bandarískum fasteignamarkaði. Eftir því sem fram kemur á vef Wall Street Journal standa uppsagnir fyrir dyrum hjá lánasviði félagsins en ekki liggi fyrir hversu mörgum verði sagt upp.
Mest lesið Of snemmt að draga fram heykvíslar Viðskipti innlent Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Ósáttur við skjal Samkeppniseftirlitsins: „Mér finnst þetta bara ófaglegt“ Neytendur Drangar kaupa Brauð & Co Viðskipti innlent Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Viðskipti innlent Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Viðskipti innlent Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Viðskipti innlent Bylgjan slær enn met í hlustun Samstarf Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Viðskipti innlent Nýr 40/40 listi: Yngri stjórnendur hógværir og gamli leiðtogastíllinn að víkja Atvinnulíf Fleiri fréttir Rukka ekki lengur foreldra fyrir að sitja við hlið barna sinna Olíuverð ekki verið lægra frá því árásirnar á Íran hófust Missir stöðu sína sem eini billjónamæringur heims Konungborinn Katari kaupir eina af bungabunga-höllum Berlusconi Vilja að Evrópa velji á milli loftslagsins og gervigreindarkapphlaupsins Olíuverð lækkar eftir fregnir af samkomulagi Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Heimsins fyrsti billjónamæringur Sögulegri skráningu SpaceX lokið Hefja rannsókn á Ryanair Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Rannsaka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka foreldra fyrir að sitja með börnum sínum OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Sjá meira