Hráolíuverð lækkar á markaði 16. ágúst 2007 10:44 Verð á hráolíu hefur lækkað á hlutabréfamörkuðum í dag samhliða betri veðurspár við Mexíkóflóa og lækkun á hlutabréfamarkaði. Mynd/AFP
Heimsmarkaðsverð á hráolíu lækkkaði um allt að rúman einn og hálfan bandaríkjadal samhliða falli á helstu fjármálamörkuðum. Inn í lækkunina spilar betri veðurspá við Mexíkóflóa en reiknað er með að hitabeltisstormar sem ógnuðu olíuvinnslustöðvum við flóann muni verða lengra frá landi en búist var við. Verð á hráolíu, sem afhent verður í næsta mánuði, lækkaði um 1,36 dali og stendur í 71,97 dölum á tunnu. Verð á Brent Norðursjávarolíu lækkaði um 1,57 dali á tunnu á markaði í Lundúnum og fór í 70,07 dali á tunnu. Vísitölur hafa lækkað um og yfir tvö prósent á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum en greinendur segja í samtali við fréttastofu Reuters að haldi niðursveiflan áfram geti olíuverðið farið sömu leið. Storma- og fellibyljatímabilið er að hefjast í Bandaríkjunum og gerðu veðurfræðingar ráð fyrir því að tveir hitabeltisstormar sem ógnuðu olíuvinnslu við Mexíkóflóa muni liggja sunnar en áður var spáð og missa dampinn eftir því sem á líði.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Viðskipti innlent Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira