Fyrsta flugi Virgin America frestað vegna veðurs 8. ágúst 2007 17:30
Breski auðkýfingurinn Richard Branson hefur sett á stofn nýtt flugfélag, Virgin America sem ætlað er að verða í forystu á hinum harða markaði innanlandsflugs í Bandaríkjunum. Fyrsta flugvélin á vegum hins nýja félags átti að hefja sig til lofts frá JFK flugvelli í Bandaríkjunum í dag með pompi og pragt, en fresta þurfti fluginu vegna gífurlegra rigninga í borginni. Virgin America er lággjaldaflugfélag en þægindin um borð eiga að jafnast á við venjuleg flugfélög. Notast er við nýjar Airbus A320 þotur búnar leðursætum, fullkomnum afþreyingarmiðstöðvum og þægilegri lýsingu, að því er fréttastofa Reuters greinir frá. Frestun jómfrúarflugsins er þó sögð minna Branson á hversu erfitt verk hann á fyrir höndum, því rekstur innanlandsflugs í Bandaríkjunum verið mjög erfiður síðustu ár. „Innanlandsflug í Bandaríkjunum er ömurlegt," sagði Branson á blaðamannafundi í New York skömmu áður en fyrsta vélin átti að fara í loftið. Raunar mættu ekki margir á fundinn vegna óveðursins. „Ástæðan fyrir því að bandarísku félögin hafa verið að fara á hausin er sú að þau bjóða viðskiptavininum ekki upp á þjónustu af neinu viti.," sagði breski milljarðanmæringurinn. Hann sagði einnig að dagurinn hefði verið afskaplega skrítinn. „Ég held að helmingur gesta okkar hafi ekki einusinni komist á flugvöllinn."
Mest lesið Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Viðskipti innlent Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Viðskipti innlent Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Viðskipti innlent Íslendingar borgi 55 prósent meira fyrir matvöru Viðskipti innlent Fjárfestu í karllægum félögum og báðu síðan um fund með forstjóranum Atvinnulíf Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Viðskipti erlent Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Viðskipti innlent Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Viðskipti innlent Fleiri fréttir OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira