Toyota selur milljónasta tvinnbílinn 7. júní 2007 14:31 Framkvæmdastjóri Toyota stendur stoltur við hlið nýjustu árgerðarinnar af Prius tvinnbíl.
Japanski bílaframleiðandinn Toyota hefur náð þeim tímamótum að selja yfir milljón tvinnbíla frá því framleiðsla á slíkum bílum hófst fyrir áratug. Eftirspurn eftir tvinnbílum hefur aukist jafnt og þétt á undanförnum árum eftir því sem umræðan um umhverfismál hefur fengið meira vægi í heiminum. Toyota er nú leiðandi í framleiðslu á umhverfisvænum bifreiðum og fáir hafa tærnar þar sem þeir hafa hælana. Undir lok síðasta mánaðar fór heildarsala Toyota á svokölluðum tvinnbílum yfir milljónamarkið en þá höfðu selst alls 1 milljón og 47 þúsund bílar af þeirri gerð. Tvinnbílar eru bílar sem bæði eru knúnir bensíni og rafmagni og menga þeir mun minna en aðrar hefðbundnar bifreiðar. Toyota hóf framleiðsu á tvinnbílum árið 1997 og ári seinna seldust 18 þúsund stykki af slíkum bílum. Árið 2006 seldi Toyota hins vegar rúmlega 312 þúsund tvinnbíla. Vinsælasti tvinnbíllinn er af gerðinni Toyota Prius en frá því byrjað var að framleiða bílinn hefur hann selst í rúmlega 757 þúsund eintökum. Toyota þykir nú vera leiðandi í framleiðslu á tvinnbílum. Bílaframleiðendur víðs vegar um heim hafa hins vegar smám saman verið að taka við sér. Þannig mun bandaríski bílaframleiðandinn General Motors setja tvær nýjar gerðir tvinnbíla á markað á þessu ári og þá hafa aðrir bílaframleiðendur kynnt svipuð áform.
Mest lesið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Viðskipti innlent Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Viðskipti innlent Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira