Portland datt í lukkupottinn 23. maí 2007 05:05 Nýliði ársins í vetur, Brandon Roy hjá Portland, var útsendari liðsins í lotteríinu í nótt og hér heldur hann sigri hrósandi á treyju númer eitt sem gefur til kynna að liðið fékk fyrsta valréttinn NordicPhotos/GettyImages
NBA-lið Portland Trailblazers datt heldur betur í lukkupottinn í nótt þegar dregið var í lotteríinu fyrir nýliðavalið í sumar. Portland fékk fyrsta valréttinn þrátt fyrir að eiga aðeins 5% líkur á að landa fyrsta valrétti og Seattle fékk annan valréttinn þrátt fyrir að eiga einnig fáar kúlur í lottóvélinni þegar dregið var. Sögufrægt lið Boston þarf að gera sér að góðu fimmta valrétt þrátt fyrir að eiga næstum 50% líkur á að landa einu af tveimur fyrstu valréttunum vegna lélegs árangurs liðsins í deildinni í vetur. Þetta er í fyrsta sinn síðan árið 1978 sem Portland fær fyrsta valrétt í nýliðavalinu í NBA og ljóst að liðið mun væntanlega fá til liðs við sig annað hvort Greg Oden eða Kevin Durant - annan tveggja yfirburðamanna sem gefa kost á sér í sumar og talið er að muni undir eins gera nýja liðið sitt mun sterkara. Atlanta fékk þriðja valréttinn og önduðu menn í Atlanta því léttar, því vegna skipta sem liðið gerði við Phoenix þegar það sendi frá sér Joe Johnson á sínum tíma, hefði Phoenix fengið valrétt liðsins ef það hefði ekki fengið eitt af efstu þremur sætunum í lotteríinu. Memphis, sem var með lélegasta árangur allra liða í vetur, fær fjórða valréttinn og gamla stórveldið Boston Celtics verður að láta sér lynda fimmta valréttinn. Hér fyrir neðan má sjá hvernig lotteríið spilaðist í nótt fyrir þau 14 lið sem ekki komust í úrslitakeppnina, en almennt er talið að 2007 árgangurinn af nýliðum í NBA deildinni verði einhver sá í áraraðir. 1. Portland 2. Seattle 3. Atlanta 4. Memphis 5. Boston 6. Milwaukee 7. Minnesota 8. Charlotte 9. Chicago (frá New York) 10. Sacramento 11. Atlanta (frá Indiana) 12. Philadelphia 13. New Orleans 14. LA Clippers
NBA Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Ég er ríkmontinn af þeim” Fótbolti „Allir tala um hvað ég er gamall“ Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Fótbolti Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Sjá meira