Tveggja ára hætt komin í sundlaug Óli Tynes skrifar 30. maí 2007 10:00
Tveggja ára stúlkubarn var hætt komið í sundlaug Íþróttamiðstöðvarinnar að Lágafelli í Mosfellsbæ, í gærkvöldi. Stúlkan var þar ásamt móður sinni og eldri systur. Hún var að leika sér í vatnsrennibraut laugarinnar og kom ekki úr kafi eftir eina ferðina. Sundlaugargestur sá til hennar og dreif hana upp á bakkann, en þá var hún hætt að anda. Starfsmaður íþróttamiðstöðvarinnar kom þá á vettvang og hóf lífgunartilraunir. Um leið var hringt eftir sjúkrabíl. Lífgunartilraunirnar báru skjótan árangur og var telpan komin með meðvitund og farin að háskæla þegar sjúkraliðar komu á vettvang. Til að hafa varann á var farið með hana til rannsóknar á barnaspítala Hringsins þaðan sem hún var útskrifuð í gærkvöldi. Jóhanna Gunnarsdóttir, forstöðumaður Íþróttamiðstöðvarinnar sagði í samtali við fréttastofuna í morgun að full gæsla væri jafnan við sundlaugina og að starfsfólkið væri þjálfað í neyðarhjálp. Meðal annars að lífga úr dauðadái.
Innlent Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira