Cristiano Ronaldo er leikmaður 18. umferðar Elvar Geir Magnússon skrifar 24. desember 2007 16:15 Ronaldo skoraði bæði mörk United gegn Everton um helgina.
Cristiano Ronaldo heldur áfram að vera þyngdar sinnar virði í gulli fyrir Englandsmeistara Manchester United. Þessi ótrúlegi vængmaður er nú orðinn markahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar eftir að hafa skorað bæði mörkin í 2-1 sigri á Everton. Smelltu hér til að sjá myndband af leikmanni 18. umferðar - Cristiano Ronaldo. Það er ekki af ástæðulausu sem margir eru á þeirri skoðun að Cristiano Ronaldo hefði átt að vera valinn knattspyrnumaður ársins frekar en Kaka. Þessi töframaður með boltann hefur verið hreint magnaður á árinu og lék lykilhlutverk þegar United tryggði sér enska meistaratitilinn. Ronaldo er fæddur árið 1985 í Portúgal. Hann var skírður í höfuðið á Ronald Reagan, fyrrum forseta Bandaríkjanna, en faðir hans hafði mikið álit á þeim manni. Ronaldo vakti fljótlega athygli fyrir gríðarlega tækni og þegar Sir Alex Ferguson leitaði að kantmanni eftir að David Beckham fór þá ákvað hann að kaupa Ronaldo frá Sporting Lissabon. Fyrsti leikur Ronaldo var þegar hann kom inn sem varamaður gegn Bolton. Hann heillaði áhorfendur með brögðum sínum og ljóst var að ný stjarna væri mætt á Old Trafford. Stjarna Ronaldo hefur skinið skært alveg síðan. Hann hefur leikið 51 leik fyrir portúgalska landsliðið og skorað í þeim tuttugu mörk. Á heimsmeistaramótinu í fyrra var honum kennt um að Wayne Rooney fékk að líta rauða spjaldið í leik Portúgals og Englands. Eftir það var púað á hann á nánast hverjum velli á Englandi. Ronaldo sýndi þó hve sterk persóna hann er og stóð það af sér þrátt fyrir ungan aldur. Hann hefur lýst því yfir að hann sé hæstánægður í herbúðum Manchester United og virðist sérstakt samband milli hans og Ferguson knattspyrnustjóra. Hann hefur þó lýst því yfir að einn daginn vilji hann leika á Spáni. Það sem af er þessu tímabili hefur Ronaldo hreint verið magnaður og klárað marga leiki fyrir United nánast upp á eigin spýtur. Fullt nafn: Cristiano Ronaldo dos Santos Aveiro. Fæddur: 5. febrúar 1985 á Madeira í Portúgal. Félög: Sporting Lissabon og Manchester United. Númer: 7
Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu Fótbolti Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Íslenski boltinn Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Dagskráin í dag: Hvaða lið fellur úr Bestu deildinni? Sport Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Handbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Fleiri fréttir City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Sjá meira