Tchenguiz tapaði 24 milljörðum kr. á Sainsbury 12. nóvember 2007 11:02
Jafnvel fyrir marg-margmilljarðamæring hlýtur 24 milljarða kr. búðarferð í stórmarkaðinn að láta til sín finna í veskinu. Þetta er sú tala sem auðjöfurinn Robert Tchenguiz er talinn hafa tapað Þegar yfirtakan á stórmarkaðakeðjunni Sainsbury gekk ekki eftir.Hinn íranættaði Tchenguiz er litríkur viðskiptajöfur og þekktur fyrir margt. Hann hefur stundað töluverð viðskipti með Íslendingum í útrásinni og á nú rúm 5% í Exista sem skaffar honum sæti í stjórn þess félags. Í Bretlandi þar sem hann býr er Tchenguiz þekktastur fyrir lífstíl glaumgosa, samband sitt við wonderbra-módelið Caprice og félaga sinn Heather Bird sem telur sig hafa leyst gátunum að eilífu lífi.Í umfjöllun The Indepentant um Tchenguiz í upphafi vikunnar segir m.a. að hann hafi veðjað skyrtunni á að Sainsbury myndi verða yfirtekið og því hlóð hann hlutafé þess í innkaupakerru sína sem mest hann mátti. Að lokum sat hann á 10% af keðjunni.En fjölskyldan sem stjórnar, og á meirihlutann, í Sainsbury tókst að verjast yfirtöku. Raunar tvisvar á skömmum tíma og þegar fjárfestingarsjóður í Katar, með ríkissjóðinn þar í landi sem bakhjarl, hætt við áform sínum um að kaupa keðjuna fyrir 11 milljarða punda eða hátt í 1.500 milljarða kr. var Tchenguiz í slæmum málum.Sjálfur yppir Tchenguiz öxlum og segir að hann muni eiga hlut sinn í Sainsbury til frambúðar. Og hver veit nema þriðji aðilinn dúkki upp sem vilji slást við fjölskylduna á bakvið Sainsbury-veldið.
Mest lesið Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Viðskipti erlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Viðskipti innlent Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Viðskipti innlent Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Norðmenn lækka álögur á eldsneyti til að létta undir með landsmönnum Apple hættir framleiðslu Mac Pro-borðtölvunnar Tímamótadómur: Fyrirtækin sjálf ábyrg en ekki notendur OpenAI kippir Sora úr sambandi Orkukreppan vegna Írans trompar öll fyrri skakkaföll Boðar fínstillingu á ETS-kerfinu á næstu dögum Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Hvetja ESB til að láta ekki undan þrýstingi á ETS-kerfið Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Sjá meira