Kvöldverður með Rupert Murdoch 9. maí 2007 03:00
Fortune | Eins og kunnugt er lagði ástralski fjölmiðlajöfurinn Rupert Murdoch fram fimm milljarða dala yfirtökutilboð í útgáfufélag dagblaðsins Wall Street Journal. Ráðandi hluthafar í félaginu höfnuðu tilboðinu hið snarasta. Murdoch mun horfa til þess að nýta félagið sem stuðning við viðskiptafréttastöð sem hann ætlar að setja á laggirnar síðar á árinu. Í bandaríska viðskiptatímaritinu Fortune rifjar greinarhöfundur blaðsins upp kynni sín af kvöldverði með fjölmiðlajöfrinum og fleira fólki fyrir tveimur árum. Að sögn greinarhöfundar var umræðuefnið möguleikar háhraðatenginga. Murdoch, sem hafði þá aðeins fjárfest í sjónvarpi, dagblöðum og útvarpi, sat íhugull mestanpart og hlustaði á umræðurnar. Murdoch mun hafa gert sér grein fyrir mikilvægi netmiðlunar því skömmu síðar keypti hann nokkur netfyrirtæki, þar á meðal netveituna MySpace og það nokkru áður en hún var jafn vinsæl og hún er í dag. Greinahöfundur segir líkur á að Murdoch muni reyna hvað hann geti til að sannfæra Bancroft-fjölskylduna, sem fer með meirihluta atkvæðaréttar í útgáfufélaginu, sem sömuleiðis heldur úti fréttaveitunni Dow Jones, að selja sér fyrirtækið. Mun hann halda áfram að bjóða betur þar til fjölskyldan sér ekki annað fært en að taka boðinu, að sögn Fortune. Nýr forstjóri fullur iðrunar Guardian | Tony Hayward, hinn nýráðni forstjóri breska olíufélagsins BP, sem tók við af hinum ólánsama Lord Browne, mun funda með George Bush, forseta Bandaríkjanna, í vikunni og mun þá bera fram afsökunarbeiðni fyrir hönd fyrirtækisins. Fyrirtækinu er gefið að sök að hafa borið ábyrgð á slælegum öryggismálum við olíuhreinsistöð fyrirtækisins í Texas í Bandaríkjunum en þegar sprenging varð þar fyrir tveimur árum létust 15 þarlendir starfsmenn fyrirtækisins og 180 slösuðust. Mun fyrirtækið eiga yfir höfði sér nokkrar málssóknir vegna þessa vestanhafs. Breska dagblaðið Guardian segir þetta merki um nýja stefnu hjá BP og hinum nýja forstjóra fyrirtækisins, sem vilji hreinsa fyrir sínum dyrum nú þegar hann hefur tekið til starfa á eftir hinum ólánsama Lord Browne, sem sagði starfi sínu lausu í byrjun mánaðar, tveimur mánuðum fyrr en hann ætlaði. Það er hins vegar fjarri að Browne sé laus allra mála þótt hann hafi gengið út um dyr BP fyrir fullt og allt. Í dag mun hann fara til fundar við lögfræðing sinn í Bandaríkjunum og mun þurfa að svara fyrir ástæðu þess að öryggismál voru í ólestri í olíuhreinsistöð fyrirtækisins í Bandaríkjunum. Óvíst er hvað það muni síðan leiða af sér en ekki þykja líkur á að Browne muni sjá fram á jafn ljúfa tíma eftir að hann hætti hjá BP og hann ætlaði í fyrstu.
Mest lesið Flugvirkjar fara í verkfall Viðskipti innlent Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Viðskipti innlent Telur yfir milljarð á dag í húfi Viðskipti innlent Hafa samband við farþega Viðskipti innlent Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Viðskipti innlent Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Viðskipti innlent Erlendis fjölgar draugastörfum: Auglýsa störf sem ekki eru til Atvinnulíf Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Viðskipti innlent Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Viðskipti erlent Gengið aldrei verið lægra Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Novo hættir að vera Nordisk Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Meta kaupir sig frá málaferlum vegna barnavelferðar Kanada svarar tollum Bandaríkjastjórnar Innkalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna Tollasamkomulag Bandaríkjanna og Kanada út um þúfur Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Sjá meira
Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Viðskipti erlent
Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Viðskipti erlent