Óttast að tapa innistæðum sínum 15. september 2007 11:42
Felmtri slegnir viðskiptavinir Northern Rock bankans Í Bretlandi streyma í útibú bankans til að taka út innistæður sínar eftir að bankinn fékk neyðarlán hjá Seðlabanka Englands í gær. Vandinn vegna annars flokks húnsæðislána í Bandaríkjunum hefur teygt sig rækilega til Bretlands. Stærsti fasteignalánabanki landsins er í vandræðum og varð í gær að leita á náðir seðlabanka landsins og sækja þangað neyðarlán. Þetta er í fyrsta sinn sem breski seðlabankinn veitir slíkt lán frá því hann var gerður óháður bresku ríkisstjórninni 1997 og fékk það hlutverk að veita slík lán. Lausafjárstaða Northern Rock mun ekki næg og erfiðlega gengið að sækja lánsfé til annarra lánastofnana þar sem vextir hafa hækkað og slíkar stofnanir halda nú að sér höndum frekar en hitt. Afkomuviðvörun hefur verið gefin út fyrir Northern Rock. Sérfræðingar á breskum fjármálamarkaði og fjármálaráðherra Breta, Alistair Darling, segja þó að þeir sem geymi sparifé sitt hjá þeim þurfi ekki að hafa áhyggjur. Þrátt fyrir það mynduðust langar biðraðir í gær og í morgun fyrir utan útibú Northern Rock áhyggjufullir viðskiptavinir sem vildu sækja fé sitt áður en verr færi. Álagið á netbankann var slíkt að ekki komust nærri allir þar inn til að færa fé sitt á milli. Verð á hlutabréfum Northern Rock hrundi um þrjátíu prósent í bresku Kauphöllinni í Lundúnum í gær. Vandi bankans hafði áhrif á aðrar fjármálastofnanir í Bretlandi. Verð á hlutabréfum í Alliance og Leicester, Brandford & Bingley lækkaði um sex til sjö prósent og verð á bréfum í HBOS og Barclays um þrjú komma fimm prósent.
Mest lesið Fjárfestu í karllægum félögum og báðu síðan um fund með forstjóranum Atvinnulíf Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Viðskipti innlent Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Viðskipti innlent Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Viðskipti innlent Regluleg viðskipti hjá Orkunni skila viðskiptavinum raunverulegum ávinningi Samstarf Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Viðskipti erlent Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Viðskipti innlent Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Viðskipti innlent OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Viðskipti erlent Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Viðskipti innlent Fleiri fréttir OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira