Lewis fór af velli með krampa í fyrsta leik 9. október 2007 09:47 Rashard Lewis haltraði af velli í fyrsta leik sínum fyrir Orlando NordicPhotos/GettyImages
Undirbúningstímabilið í NBA hófst á fullu í Bandaríkjunum í nótt þegar þrír leikir voru á dagskrá. Nokkrir leikir verða á dagskránni í kvöld og þar af verður fyrsta beina útsending NBA TV sjónvarpsstöðvarinnar frá leik Sacramento og Seattle klukkan 2 í nótt. Orlando tapaði heima fyrir Atlanta 94-93 þar sem nýliðinn Acie Law IV skoraði sigurkörfu gestanna þegar 15 sekúndur voru til leiksloka. Orlando fékk skrekk í þriðja leikhlutanum þegar nýji maðurinn Rashard Lewis haltraði af velli, en nú hefur verið staðfest að hann hafi bara verið með krampa í fætinum. Dwight Howard skoraði 30 stig og hirti 11 fráköst fyrir Orlando en Josh Smith skoraði 22 stig og hirti 11 fráköst fyrir Atlanta. New York skellti Philadelphia 101-92. David Lee skoraði 18 stig fyrir New York og nýji maðurinn Zach Randolph átti fínan leik með 17 stig. Andre Miller skoraði 17 stig fyrir Philadelphia. Þá vann Detroit auðveldan sigur á Miami 103-86, en Miami var án Shaquille O´Neal, Dwyane Wade og Alonzo Mourining sem eru meiddir. Marcus Slaughter skoraði 17 stig fyrir Miami og nýliðinn Rodney Stuckey skoraði 15 fyrir Detroit. Í kvöld fara svo fram sjö leikir og þar af verður leikur Sacramento og Seattle sýndur beint á NBA TV klukkan 2 eftir miðnættið. Þar gefst áhorfendum væntanlega kostur á að sjá nýliðann Kevin Durant hjá Seattle, en hann var valinn númer 2 í nýliðavalinu í sumar og hefur vakið mikla athygli fyrir góðan leik í sumar - þ.a.m. með landsliðinu.
NBA Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Ég er ríkmontinn af þeim” Fótbolti „Allir tala um hvað ég er gamall“ Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Fótbolti Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Sjá meira