Nýliðinn fær milljarða 4. júlí 2007 00:30 Nýliðanum Greg Oden er ætlað að feta í fótspor Clyde Drexler og leiða Portland til afreka. Oden fær fúlgur fjár í sinn hlut auk þess sem búist er við margfaldri treyjusölu í Portland.
Greg Oden, sem valinn var fyrstur í nýliðavali NBA-deildarinnar í körfuknattleik á dögunum, skrifaði á sunnudag undir samning við Portland Trailblazers. Oden gerði tveggja ára samning sem hann getur síðan framlengt um tvö ár hugnist honum svo. Nýliðinn fær í sinn hlut rúmar 228 milljónir íslenskra króna fyrir fyrsta árið og fer upphæðin stighækkandi. Ákveði Oden að framlengja samninginn fær hann í sinn hlut tæpar 270 milljónir fyrir fjórða ár sitt hjá félaginu. Nýliðavalið í ár þótti það sterkasta í manna minnum og Oden feitasti bitinn. Oden fær ekki einungis hundruðmilljóna frá sínu nýja félagi á ári hverju heldur á hann von á milljörðum króna í styrktarsamningum frá hinum ýmsu stórfyrirtækjum. Lið Portland hefur verið með þeim allra slökustu í NBA-deildinni undanfarin ár. Forráðamenn félagsins vona að Oden beri liðsfélaga sína á herðum sér og leiði félagið til afreka á komandi árum. Aðdáendur bíða komu Oden í ofvæni en þeir hafa ekki átt sér átrúnaðargoð síðan Clyde „The Glide“ Drexler var upp á sitt besta í upphafi tíunda áratugs síðustu aldar. Markaðsstjórar NBA-deildarinnar eru ekki síður spenntir og telja að Oden margfaldi treyjusölu hjá Portland-liðinu.
Mest lesið Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Viðskipti innlent Meiri árangur í líkamsrækt og íþróttum með nýrri íslenskri tækni Atvinnulíf Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Viðskipti innlent Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Viðskipti innlent Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Viðskipti innlent Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Viðskipti innlent Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Viðskipti innlent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Viðskipti innlent Nýjar íbúðir í Firði: Lúxus að búa í miðbæ Hafnarfjarðar Samstarf Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rannsaka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka foreldra fyrir að sitja með börnum sínum OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira