Sölunni lokið á AAT 29. ágúst 2007 05:30 Hafþór Hafsteinsson stjórnarformaður Avion Aircraft Trading segir hafa verið tímabært að ljúka við að kaupa félagið af Eimskipi. GVA
Hf. Eimskipafélag Íslands hefur selt 49 prósenta hlut félagsins í Avion Aircraft Trading (AAT) á 28 milljónir Bandaríkjadala, eða sem nemur tæplega 1,8 milljörðum króna. Kaupandi er Arctic Partners ehf. sem er í eigu Hafþórs Hafsteinssonar, stjórnarformanns AAT, Arngríms Jóhannssonar, stjórnarmanns og annarra stjórnenda. Arctic Partners keypti 51 prósents hlut í AAT af Eimskipi í október í fyrra. Fram að þeim tíma var félagið að fullu í eigu Eimskips. Hafþór Hafsteinsson, starfandi stjórnarformaður Avion Aircraft Trading, segir samstarfið við Eimskip síðustu misseri hafa verið mjög ánægjulegt en nú hafi verið rétti tímapunkturinn til að kaupa félagið í heild. „Við erum að vinna í spennandi verkefnum og horfum fram á góð tækifæri sem styðja við kaupin.“ Í tilkynningu Eimskips kemur fram að söluhagnaður félagsins af 49 prósenta hlutnum nemi um 24 milljónum Bandaríkjadala, en það eru rúmlega 1,5 milljarðar króna. Salan verður færð á þriðja ársfjórðung og andvirðið notað til að greiða niður skuldir Eimskips sem til eru komnar vegna mikilla fjárfestinga í fyrirtækjum á sviði kæli- og frystigeymsla. Salan á AAT er í samræmi við stefnu Eimskips um að selja frá félaginu flugrekstrartengdar eignir. Baldur Guðnason, forstjóri Eimskips, segir mikilvægt fyrir félagið að einbeita sér að kjarnastarfsemi sinni sem sé í flutningum og geymslu á kæli- og frystivörum. „Við erum að byggja hana upp og höfum nú þegar leiðandi stöðu á því sviði á heimsvísu.“
Mest lesið Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Viðskipti innlent Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent Einn ríkasti maður Noregs látinn Viðskipti erlent Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Neytendur Himneskt ei meir Viðskipti innlent Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Viðskipti innlent Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira