Hélt að mín síðasta stund væri runnin upp 6. nóvember 2007 23:17 MYND/Vilhelm
Davíð Davíðsson, einn farþeganna sem voru um borð í Fokker vél Flugfélags Íslands sem nauðlenti á Egilsstaðaflugvelli í kvöld segist hafa haldið að hans síðasta stund væri runnin upp þegar flugfreyjan tilkynnti að nauðlending á landi væri fyrirhuguð og bað fólk um að halla sér fram í sætum sínum. Hann segir áhöfn vélarinnar hafa staðið sig með sóma en gagnrýnir flugfélagið fyrir að gera ekki betur við farþegana þegar vélin hafði lent heilu og höldnu. „Við erum farin á loft og það var svolítil ókyrrð í lofti. Þegar við vorum búin að fljúga í 20 til 25 mínútur tilkynnti flugmaðurinn að þeir hafi þurft að slökkva á öðrum hreyflinum vegna þess að olíuþrýstingurinn hafði lækkað," segir Davíð í samtali við Vísi. Davíð segir að þá hafi ekki verið ljóst hvað yrði tekið til bragðs en flugmennirnir biðu frekari fyrormæla. „Skömmu seinna kemur tilkynning í hátalarakerfinu um neyðarlækkun, „emergency descend," upp á ensku. Við fundum greinilega fyrir því að vélin lækkaði flugið snarlega og flugfreyjan tilkynnti þá um fyrirhugaða nauðlendingu á landi," segir Davíð. Davíð segir að farþegarnir hafi verið beðnir um að kynna sér viðbrögð við nauðlendingu og þeir beðnir um að halla sér fram í sætunum og búa sig undir nauðlendingu. „Þessi þula var endurtekin í sífellu á ensku og íslensku og þarna hvarflaði nú að manni að síðasta stund lífsins væri runnin upp," segir Davíð og bætir því við að nú viti hann hvað sé það síðasta sem fólk sem lendir í flugslysi heyrir áður en vélin skellur í jörðina. Að sögn Davíðs stóð flugfreyjan sig mjög vel í því að stappa stálinu í farþegana um borð. Vélinni var síðan snúið áleiðis til Egilsstaða og að sögn Davíðs gekk lendingin vel fyrir sig þrátt fyrir töluverða ókyrrð og mikla hreyfingu. Að því loknu var haldinn fundur í flugstöðinni á Egilsstöðum þar sem farið var yfir það sem gerðist og fólki boðin áfallahjálp. Davíð er hins vegar ekki jafn ánægður með framkomu flugfélagsins. „Fólki var boðið að fara og koma aftur í fyrramálið eða bíða eftir vél sem fer fyrst til Akureyrar og kemur síðan hingað til að sækja okkur. Mér finnst svolítið klént hjá fyrirtækinu að senda ekki aðra vél strax eða bjóða fólki gistingu á Egilsstöðum. Kaffiterían var opnuð og við gátum keypt okkur kaffi, en það var ekkert verið að bjóða fólki neitt eftir þessa lífsreynslu," segir Davíð Davíðsson, flugfarþegi.
Mest lesið Ferðamaður fannst látinn og þriggja saknað á eyjum Grikklands Erlent Hver er þessi 28 ára maður sem gæti orðið forsætisráðherra Frakka? Erlent „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ Innlent Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Innlent „Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum?“ Innlent Netanjahú leysir stríðsráðið upp Erlent Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní Innlent Rafmagn er komið á í Mosfellsbæ Innlent Fjallkonan í ár er Ebba Katrín Innlent Flokkurinn standi ekki lengur með mannréttindum Innlent Fleiri fréttir Flokkurinn standi ekki lengur með mannréttindum Fjallkonan í ár er Ebba Katrín Þjóðhátíðardagur, Arnarlax og úrsögn úr Samfylkingunni Rafmagn er komið á í Mosfellsbæ Eldur kviknaði í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ „Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum?“ Sælkerasveppir ræktaðir í gróðrarstöð í Mosfellsdal Óttast að Quang Le hafi samband við þolendur Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Altjón í tíu búðum Kringlunnar og undirbúningur fyrir þjóðhátíðardaginn Oddviti Garðarbæjarlistans hættir í Samfylkingunni Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Parísarhjól sprettur upp við höfnina Stefna á að opna Kringluna á þriðjudag Fá ekki fjármagn til að laga Flóttamannaleiðina fyrr en 2028 Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Það verði „drulluerfitt“ að rífa VG úr lægðinni Jarðaberjarækt í grænum iðngarði í Helguvík Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Slökkvistarf í Kringlunni og staða Vinstri grænna Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Ferðaþjónustan, þingmálin og Running Tide í Sprengisandi Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík Sjá meira