Gísli Marteinn: Björn Ingi er konungur smjörklípunnar 6. nóvember 2007 17:09 Gísli Marteinn og Björn Ingi á meðan allt lék í lyndi. MYND/Pjetur
Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, deildi hart á Björn Inga Hrafnsson á borgarstjórnarfundi í dag vegna REI-málsins og kallaði Björn Inga meðal annars konung smjörklípunnar. Minnihlutinn og meirihlutinn hafa deilt hart um málefni REI á fundi borgarstjórnar í dag. Svandís Svavarsdóttir, borgarfulltrúi Vinstri - grænna, sagði meðal annars á fundinum að skipið Reykjavik Energy Invest hefði verið stefna í siðferðilegt og pólitískt skipbrot. Þá sagði hún menn hafa gengið um með milljarðaglampa í augum í málinu Bæði Hanna Birna Kristjánsdóttir og Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúar Sjálstæðisflokksins, sögðu að enginn hefði staðið vörð um hagsmuni Orkuveitunnar í málinu. Gísli Marteinn vakti einnig athygli á orðum Svandísar og sagði að menn þyrftu ekki lengi að líta yfir borgarstjórnarsalinn til þess að sjá við hvern Svandís ætti þegar hún hefði talað um milljarðaglampa í augum. Þá sagði hann stjórnarmenn REI hafa brugðist hlutverki sínu en í stjórn REI hefði aðeins verið einn stjórnmálamaður, Björn Ingi Hrafnsson. Gísli Marteinn minntist einnig á orð Svandísar um siðferðilegt og pólitískt skipbrot sem REI hefði stefnt í. Sagði hann aðeins einn borgarfulltrúa viljað halda þeim kúrsi, Björn Inga Hrafnsson. Hann hefði sett fram þá kröfu að ef eigendafundur Orkuveitunnar 3. október yrði gerður ólöglegur yrði boðað til annars eigendafundar og samruni REI og GGE samþykktur aftur. Þá sagði Gísli að Björn Ingi hefði reynt að gera það að einhverju máli að Geir og Vilhjálmur hefðu fundað um málefni REI en fram hefði komið að 20 ára þjónustusamningur REI og OR hefði ekki verið ræddur þar. Með þessari vendingu sýndi Björn Ingi að hann væri konungur smjörklípunnar. Þá sagði Gísli Marteinn að sjálfstæðismenn hefðu óskað eftir því að umboðsmaður Alþingis kæmi á fund stýrihóps um málefni REI og færi yfir vinnuna. Mikilvægt væri að draga alla hluta málsins fram í ljósið. Svikabrigsl og dylgjur á borgastjórnarfundi Björn Ingi Hrafnsson, borgarfulltrúi framsóknarmanna, benti á að þetta væri í þriðja sinn sem REI-mál væru rædd í borgarstjórn. Í fyrsta skipti hefðu sjálfstæðismenn þagað þunnu hljóði en í næstu umræðu hefði fúkyrðum rignt yfir hann. Hann sagði enn fremur að á fundinum í dag hefðu stór orð fallið í hans garð og sömuleiðis fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í stjórn Orkuveitunnar og REI. Önnur eins svikabrigsl og dylgjur hefðu varla heyrst á borgarstjórnarfundi eins og í dag. Þá sagði Björn Ingi að hann hefði fremur átt von á dauða sínum en að verða vitni að þeim klofningi sem væri innan Sjálfstæðisflokksins. Í borgarstjórnarflokknum væri hver höndin upp á móti annnarri og gerð hefði verið uppreisn gegn leiðtoganum Vilhjálmi Vilhjálmssyni. Hann hefði unnið þá höfuðsynd að vinna sigur í prófkjöri flokksins fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar. Björn Ingi sagði enn fremur að prinsipp sjálfstæðismanna í REI-málinu, um að opinber fyrirtæki ættu ekki að vera í áhættufjárfestingum, væri nýtilkomin enda hefði Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra og fyrrverandi stjórnarformaður Orkuveitunnar, markað stefnuna í orkuútrásinni. Sjálfstæðismenn væru því í mótsögn við sjálfa sig í málinu.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Fjórtán fá styrk frá Eyjólfi Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Sjá meira