Matvöruverð skaut verðbólgu upp 15. ágúst 2007 02:00 Verðbólga hefur ekki mælst hærri í Kína í áratug. Miklar hækkanir á matvöruverði skýra verðbólguna.
Verðbólga mældist 5,6 prósent í Kína í síðasta mánuði og hefur ekki verið hærri í rúman áratug, samkvæmt nýbirtum gögnum hagstofu Kína. Verðhækkanir á matvöru leiða hækkanirnar. Af einstökum matvælum hækkaði verð á svínakjöti mest, um 45,2 prósent, en verð á eggjum fór upp um rúm 30 prósent. Bandaríska viðskiptatímaritið Forbes hefur eftir kínverskum ráðamönnum að þeir séu uggandi yfir því að sá 11,9 prósenta hagvöxtur sem mældist á öðrum ársfjórðungi geti leitt af sér enn meiri verðbólgu á næstu mánuðum. Séu líkur á að kínverski seðlabankinn grípi til aðgerða til að draga úr aðgengi einstaklinga og fyrirtækja að lánsfé, svo sem með hækkun stýrivaxta og með öðrum hamlandi þrepum, að sögn blaðsins. Talsmaður hagstofu Kína segir hins vegar að óþarfi sé að bregðast harkalega við á næstunni enda liggi hækkunin nú fyrst og fremst í hækkun á matvöruverði sem sé tilkomin vegna lítils framboðs af svínakjöti á markaði. Aðrir vöruflokkar, svo sem verð á fatnaði, hafi hækkað talsvert minna, eða einungis um 0,9 prósent, á sama tíma.
Mest lesið Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Viðskipti innlent Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Viðskipti innlent Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Viðskipti innlent Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf Einn ríkasti maður Noregs látinn Viðskipti erlent Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira