Smásöluverslun jókst vestanhafs 15. ágúst 2007 00:15 Aukning í smásöluverslun í Bandaríkjunum sýnir að neytendur halda ekki að sér höndum þrátt fyrir þrengingar á fasteignalána- og fjármálamarkaði líkt og óttast var. MYND/AP
Smásöluverslun í Bandaríkjunum jókst um 0,3 prósent á milli mánaða í júlí. Sé sala á bílum og eldsneyti undanskilin úr tölunum nemur hækkunin 0,4 prósentum, samkvæmt nýútkomnum tölum bandaríska viðskiptaráðuneytisins. Þetta er 0,1 prósentustigi meira en greinendur höfðu gert ráð fyrir. Þá er þetta talsverður bati frá mánuðinum á undan en þá dróst smásöluverslun saman um 0,7 prósent á milli mánaða. Tölur um smásöluverslun eru lykilvísir í bandarískum hagtölum en þær þykja einkar góð vísbending um horfurnar í bandarísku efnahagslífi á næstu mánuðum. Tölurnar nú sýna að neytendur eru bjartsýnir þrátt fyrir hræringar á helstu mörkuðum. Bandaríska fréttaveitan Bloomberg hefur eftir greinanda hjá Wachovia, fjórða stærsta banka Bandaríkjanna, að fjárfestar, sem höfðu áhyggjur af því að samdráttur á fasteignalánamarkaði vestanhafs hefði áhrif á neytendur, geti nú andað léttar.
Mest lesið Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Viðskipti innlent Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Viðskipti innlent Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Viðskipti innlent Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf Einn ríkasti maður Noregs látinn Viðskipti erlent Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira