Enski boltinn

Brynjar Björn fékk rautt

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Brynjar Björn Gunnarsson fær að líta rauða spjaldið í dag.
Brynjar Björn Gunnarsson fær að líta rauða spjaldið í dag. Nordic Photos / Getty Images

Brynjar Björn Gunnarsson fékk að líta rauða spjaldið í leik West Ham og Reading í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Spjaldið fékk hann fyrir tveggja fóta tæklingu á Hayden Mullins og má búast við því að hann fái þriggja leikja bann fyrir.

Reading hafði verið sterkari aðilinn í leiknum en það var Nolberto Solano sem kom West Ham yfir í leiknum undir lok fyrri hálfleiks. Þannig er staðan þegar þetta er skrifað.

Ívar Ingimarsson var sömuleiðis í byrjunarliði Reading í dag.

Smelltu hér til að sjá samantekt úr leiknum, þar á meðal brot Brynjars Björns. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×