Vilja ekki kaupa ABN Amro 13. júní 2007 06:00 Nýir hluthafar breska bankans Barclays vilja að hann hætti við yfirtöku á hollenska bankanum ABN Amro. Markaðurinn/AFP
Bandaríski fjárfestingasjóðurinn Atticus þrýsti á stjórnendur breska bankans Barclays að draga yfirtökutilboð sitt í hollenska bankann ABN Amro til baka. Atticus kom í hluthafahóp Barclays í síðustu viku eftir kaup á eins prósenta hlut í bankanum. Segir í opnu bréfi sjóðsins til Marcus Agius, stjórnarformanns Barclays, sem Atticus birti í breska dagblaðinu Financial Times, að hætta sé á að verðmiðinn fyrir ABN Amro verði Barclays dýr. Í bréfinu kom fram að Barclays muni gefa út nýtt hlutafé vegna kaupanna, sem hljóði upp á 65 milljarða evra, jafnvirði 5.600 milljarða íslenskra króna. Það jafngildir 15-földum hagnaði ABN Amro. Atticus segir þetta of stóran bita fyrir Barclays að kyngja þar sem samlegð með bönkunum tveimur sé lítil. Að mati Atticus eru horfur á að samlegðin sé meiri hjá Royal Bank of Scotland og ABN Amro og því séu líkur á að skoski bankinn og meðbjóðendur hans hækki tilboðið til að tryggja sér bankann.
Mest lesið Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Viðskipti innlent Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Viðskipti innlent Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira