Markaðstorg í miðju Stokkhólms 28. mars 2007 06:15 SOUK í Stokkhólmi. Ný verslunarmiðstöð í eigu Baugs var opnuð í Stokkhólmi. Gengi hennar mun ráða frekari útrás þessarar hugmyndar í helstu stórborgum.
Debenhams á Drottningargötunni var lokað um miðjan janúar. Strax eftir lokun var hafist handa við að breyta búðinni. Åke Hellqvist og hans fólk breytti búðinni í verslunarmiðstöð tísku fyrir ungt fólk á níu vikum. „Við gerðum þetta á íslenskum hraða,“ segir Åke og glottir þreytulega, en yfirvinnugleði þar í landi er ekki sú sama og þekkist á Íslandi. Allt er að smella fyrir kvöldið og von á fjölda gesta. „Kändisarnir“ eins og Svíar kalla fræga fólkið tínist inn eftir rauða dreglinum. Debenhams náði ekki fótfestu á markaðnum. Jón Ásgeir Jóhannesson segir að Debenhams hafi eftir að það komst í einkaeigu sett stefnuna á Bretland og svo vaxtarmarkaði. Áherslan hafi því ekki orðið á fyrirbæri eins og verslunina í Stokkhólmi. Baugur og Arcadia tóku því höndum saman og settu vörumerki sín fyrir ungt fólk á einn stað. „Þetta er spennandi verkefni og ef þessi tilraun gengur upp munum við halda áfram að opna slíkar verslanir í helstu stórborgum,“ segir Jón Ásgeir. Ávörp og þakkir Åke Hellqvist, framkvæmdastjóri SOUK í Stokkhólmi, og Gunnar Sigurðsson, framkvæmdastjóri hjá Baugi, ávörpuði gesti og þökkuðu þeim sem lögðu nótt við dag til að takast mætti að opna á réttum tíma. Vöruhúsið er í eigu Baugs og fékk nafnið SOUK. Nafnið er fengið frá Austurlöndum og þýðir markaðstorg eða samkomustaður. Hugmyndin er að búa til deiglu tísku og lífsstíls ungs fólks í miðbæjum stórborga. Reyndar má leika sér með nafnið og lesa það „so UK“ enda eru vörumerki hússins bresk. Verslunarmiðstöðin fyllist hratt af fólki og Åke og Gunnar Sigurðsson, sem stýrir smásölufjárfestingum Baugs, stíga á svið og ávarpa gesti með tilheyrandi þökkum til þeirra sem lagt hafa nótt við dag til að hægt sé að halda upp á daginn. Gestir taka nýrri búð vel og suðið í afgreiðslukössunum byrjar þegar, enda margir sem ekki standast freistinguna að kaupa svolítið í leiðinni, enda þótt samkoman sé meira hugsuð sem partí.
Mest lesið Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Viðskipti innlent Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur „Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“ Atvinnulíf Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Arion banki og Kvika blása af samrunann Viðskipti innlent Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Norðmenn lækka álögur á eldsneyti til að létta undir með landsmönnum Apple hættir framleiðslu Mac Pro-borðtölvunnar Tímamótadómur: Fyrirtækin sjálf ábyrg en ekki notendur OpenAI kippir Sora úr sambandi Orkukreppan vegna Írans trompar öll fyrri skakkaföll Boðar fínstillingu á ETS-kerfinu á næstu dögum Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Hvetja ESB til að láta ekki undan þrýstingi á ETS-kerfið Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Sjá meira