Veðurtjón á eftir að tvöfaldast 29. ágúst 2007 02:00
Tjón af völdum veðurfars í Skandinavíu kemur til með að tvöfaldast fyrir lok 21. aldar, samkvæmt því sem fram kemur á ráðstefnunni Nordic Risk & Insurance Summit (NORIS) sem hófst í Stokkhólmi í gær. Ráðstefnunni, sem er á vegum helstu norrænu vátryggingarfélaganna, lýkur í dag. Swiss Re, stærsta endurtryggingafélag heims og í fremstu röð áhættumatsfyrirtækja, varar við afleiðingum loftslagsbreytinga á Norðurlöndum til lengri tíma litið og segir vetrarstormana Anatol, Gudrun og Per aðeins vera fyrirboða um illviðrasamari tíð í Skandinavíu. Verra veður segir félagið svo að muni leiða til tvöföldunar á bótakröfum vegna tjóns af völdum veðurs fyrir lok þessarar aldar. Með þetta í huga ræða sérfræðingar fyrirtækisins á ráðstefnunni hvernig beita megi öðrum aðferðum við áhættudreifingu en nú er gert, svo sem stóráfallaskuldabréfum, til að takast á við efnahagslegar afleiðingar loftslagsbreytinga. Haft er eftir Luca Albertini, framkvæmdastjóra fjármálastýringar og ráðgjafarþjónustu Swiss Re að markaður fyrir tryggingartengd skuldabréf muni að öllum líkindum vaxa hratt á komandi árum. „Swiss Re áætlar að vetrarstormar í Evrópu kosti nú tryggingafélögin árlega um 2,6 milljarða evra [nærri 230 milljarða króna]. Ef gert er ráð fyrir einfaldri línulegri aukningu hækkar þessi tala um á að giska 11 milljónir evra [tæpan milljarð króna] árlega. Miðað við áætlaðar árlegar tjónakröfur má því ætla að kostnaður vegna tryggðra tjóna í Skandinavíu hafi tvöfaldast fyrir næstu aldamót,“ segir í tilkynningu félagsins.
Mest lesið Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Viðskipti innlent Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Viðskipti innlent Íslendingar borgi 55 prósent meira fyrir matvöru Viðskipti innlent Fjárfestu í karllægum félögum og báðu síðan um fund með forstjóranum Atvinnulíf Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Viðskipti innlent Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Viðskipti innlent Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Viðskipti innlent Regluleg viðskipti hjá Orkunni skila viðskiptavinum raunverulegum ávinningi Samstarf Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Viðskipti erlent Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Viðskipti innlent Fleiri fréttir OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira