Vinna að jafnvægi á fjármálamarkaði Jón Aðalsteinn Bergsveinsson skrifar 15. ágúst 2007 02:30 Bloomberg segir líkur á að Seðlabanki Bandaríkjanna muni grípa til mótvægisaðgerða gegn samdætti á fasteignalánamarkaði vestanhafs. MYND/AP
Evrópski seðlabankinn opnaði pyngjur sínar á ný í vikubyrjun og veitti fjármálastofnunum aðgang að fjármagni á fjögurra prósenta vöxtum til að mýkja áhrif skellsins á hlutabréfamarkaði á föstudag og koma í veg fyrir að hann endurtæki sig. Þetta er þriðji dagurinn í röð sem seðlabankinn veitir vilyrði fyrir lánum sem þessum. Fjöldi annarra banka hefur gripið til sömu ráða, svo sem seðlabanki Bandaríkjanna, Ástralíu og Japans auk þess sem seðlabankar í fleiri Asíulöndum ætla að hugsa málin. Heildarvirði lánanna nemur 289,7 milljörðum Bandaríkjadala, jafnvirði rúmra nítján þúsund milljarða íslenskra króna sem bankarnir geta sótt sér til seðlabankanna. Bankastjórar allra banka segja að með þessu hafi jafnvægi skapast á fjármálamarkaði. Skýringin á niðursveiflunni á alþjóðlegum hlutabréfamarkaði á föstudag í síðustu viku liggur í miklum samdrætti á fasteignalánamarkaði í Bandaríkjunum, sem sérhæfir sig í útlánum til einstaklinga með lélegt lánshæfi. Samdráttarins varð fyrst vart á vordögum vestra þegar vanskil á fasteignalánamarkaði jukust mikið. Hann einskorðaðist hins vegar við fjármálastofnanirnar á þessum sérstaka markaði. Þrátt fyrir væringar á fjármálamörkuðum á vordögum ákvað Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, að verða ekki við óskum uggandi fjárfesta og koma til móts við þrengingarnar með lækkun stýrivaxta. Fréttaveitan Bloomberg hefur eftir sérfræðingi hjá Citigroup í Lundúnum í Bretlandi, að þótt ástandið hafi náð jafnvægi þá gegni öðru máli um viðhorf manna. „Óttinn mun líða hjá hægt og bítandi,“ segir sérfræðingurinn í samtali við Bloomberg, sem gagnrýnir þá Bernanke, Henry Paulson, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, og fleiri ráðamenn í þar í landi sem gerðu fátt til að koma í veg fyrir skellinn með tilhlýðilegum aðgerðum. Að mati Bloomberg hefði verið hægt að koma í veg fyrir viðlíka titring og á föstudaginn með lækkun stýrivaxta en slíkt hefði bætt úr lausafjárstöðu fjármálastofnana og lækkað vaxtabyrði lántaka. Bloomberg segist að einmitt nú verði breyting á til að vega upp á móti niðursveiflunni. Þannig séu líkur á að Seðlabanki Evrópu hækki stýrivexti sína um 25 punkta á næsta fundi sínum í næsta mánuði og muni þeir standa í 4,25 prósentum út árið. Óvíst er um aðgerðir annarra banka. Mestu munar þó um ákvörðun bandaríska seðlabankans en Bloomberg telur bankann koma til móts við erfiðleikana á fjármagnsmarkaði með 25 punkta stýrivaxtalækkun um miðjan september. Verði það raunin verða Bandaríkin þau fyrstu af G-7 löndunum, sjö stærstu iðnríkjum heims, til að lækka stýrivexti.
Mest lesið Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Viðskipti innlent Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Viðskipti innlent Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent Einn ríkasti maður Noregs látinn Viðskipti erlent Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira