Viðskipti erlent

Gott uppgjör í Færeyjum

Marner Jacobsen, forstjóri Eik Banka
Marner Jacobsen, forstjóri Eik Banka

Hagnaður hins færeyska Eik banka nam tæpum 2,3 milljörðum íslenskra króna á fyrri helmingi árs. Um er að ræða rétt rúma þrjátíu prósenta hagnaðaraukningu sé miðað við sama tímabil í fyrra.



„Þetta er methagnaður. Við höfum vaxið gríðarlega á þessu ári, bæði í Danmörku og í Færeyjum. Þá hafa fjárfestingar okkar á Íslandi og í Danmörku skilað góðum hagnaði,“ sagði Marner Jacobsen forstjóri.

Fram kemur í tilkynningu frá Eik banka að vænta megi rúmlega 3,7 milljarða hagnaðar fyrir árið í heild. Þá segir að árið 2007 verði lengi í minnum haft innan félagsins, enda hafi Eik banki verið skráður tvíhliða á markað í Danmörku og á Íslandi fyrr á árinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×