Flugferðir með glænýju sniði 18. júlí 2007 03:15 Nýja þotan frá Boeing er með umtalsvert stærri glugga en forverar hennar í háloftunum. Nýtt byggingarefni vélarinnar, samþættar koltrefjar, gera þetta mögulegt. Guðjón Arngrímsson, upplýsingastjóri Icelandair Group, lætur hér fara vel um sig í eftirlíkingu af innra byrði Dreamliner-þotunnar. Markaðurinn/ÓKÁ
Gríðarleg eftirvænting var á frumsýningu farþegaþotunnar nýju frá Boeing í Everett, skammt frá Seattle í Bandaríkjunum, sunnudaginn 8. júlí síðastliðinn. Staðreyndin er enda sú að aldrei hefur meira verið selt í forsölu af einni vél, 677 stykki. Að því er fram kom í ræðu Jims McNerney, forstjóra Boeing á opnunarhátíðinni, er þetta í fyrsta sinn sem forpantanir á nýrri flugvél fara yfir 500. Fyrsta reynsluflug þotunnar er sagt verða á næstunni, en fyrstu vélarnar á að afhenda Air Nippon Airways í Japan í maí á næsta ári. Erlend félög hafa sambandÍ sýningarsal Boeing Blaðamenn fyrir utan uppsetningu á innviðum Dreamliner-þotunnar nýju þar sem fá mátti tilfinningu fyrir innanstokksmunum, nýrri lýsingu og stærri gluggum en flugfarþegar eiga almennt að venjast. Markaðurinn/ÓkÁIcelandair var fyrsta evrópska flugfélagið til að panta Dreamliner-vélar og kom þannig mjög snemma inn í ferlið. Að sögn Jóns Karls Ólafssonar nýtur félagið þess í kjörum auk þess sem ákveðin tækifæri hafi orðið til á endursölumarkaði vegna mikils áhuga á vélinni. Icelandair hefur tryggt sér sjö þotur, á kauprétt á þremur og hefur þegar samið um kaup á fjórum vélum sem verða afhentar árin 2010 og 2012. Þá fylgir tékkneska flugfélaginu Travel Service kaupréttur á tveimur vélum til viðbótar, en Icelandair á í viðræðum um kaup á félaginu. Sigþór Einarsson, framkvæmdastjóri hjá Icelandair, gerir ráð fyrir að lokið verði við kaupin í sumar. Listaverð Dreamliner-véla er um 160 milljónir Bandaríkjadala, eða tæpir 10 milljarðar króna. Jón Karl segir erlend flugfélög þegar hafa sett sig í samband við Icelandair og sýnt nýju vélunum þeirra áhuga, en Icelandair hafi tímann fyrir sér í vangaveltum um slíka hluti.Markaðssvæðið margfaldastUndir bol Dreamliner-þotunnar Jón Karl Ólafsson forstjóri og Sigþór Einarsson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Icelandair Group, stilla sér glaðbeittir upp undir búk fyrstu Boeing 787 Dreamliner-þotunnar sem búin var til á kynningarhátíð hennar í Bandaríkjunum áttunda þessa mánaðar. Markaðurinn/ÓkÁEins hefur ekki verið tekin ákvörðun um á hvaða leiðum nýju vélarnar verði, hvort þær værði notaðar í áætlunarferðum sem þegar eru í gangi, eða hvort horft verði til nýrra og jafnvel fjarlægari áfangastaða. „Ljóst er að tækifæri skapast og við höfum áður upplýst að við séum að skoða áfangastaði í Asíu og víðar. Með þessum nýju vélum getum við gert nánast hvað sem við viljum, markaðssvæðið margfaldast.“ Sigþór Einarsson bendir einnig á að vélarnar séu fleiri kostum búnar en langdrægi. „Þær eru léttari og sparneytnari og eru þess vegna hagkvæmari þótt ekki sé verið að nýta allt langdrægið. Vélarnar sýnist okkur að geti líka passað ágætlega inn á núverandi leiðakerfi. Þótt markaðirnir hafi verið að stækka þá sjáum við líka þörf fyrir þessa stærð af vélum strax árin 2010 og 2012 þegar þær koma.“ Jón Karl segir kaupin á 787 vélunum jafnframt hafa verið eðlilegt framhald í viðskiptasögu Icelandair og Boeing. „Síðan 1988 og 1989 höfum við verið með 757 vélar en þær eru ekki framleiddar lengur og við komin að því að taka næstu skref. Félagið hefur stækkað ört og við þurfum að taka inn stærri vélar.“ Þá segir hann samstarf Icelandair og Boeing hafa verið mjög langt og farsælt og þurfi því ekki að koma á óvart að áframhald verði þar á, þótt vissulega hafi aðrir kostir einnig verið skoðaðir.
Mest lesið Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Of snemmt að draga fram heykvíslar Viðskipti innlent Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Viðskipti innlent Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Viðskipti innlent Drangar kaupa Brauð & Co Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rukka ekki lengur foreldra fyrir að sitja við hlið barna sinna Olíuverð ekki verið lægra frá því árásirnar á Íran hófust Missir stöðu sína sem eini billjónamæringur heims Konungborinn Katari kaupir eina af bungabunga-höllum Berlusconi Vilja að Evrópa velji á milli loftslagsins og gervigreindarkapphlaupsins Olíuverð lækkar eftir fregnir af samkomulagi Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Heimsins fyrsti billjónamæringur Sögulegri skráningu SpaceX lokið Hefja rannsókn á Ryanair Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Rannsaka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka foreldra fyrir að sitja með börnum sínum OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Sjá meira