Árslaun á einum degi 11. júlí 2007 03:30 Malavíska hagkerfið er rúmlega helmingi minna en hið íslenska, þrátt fyrir að í Malaví búi tæplega fjórtán milljónir manna.
Afríkulýðveldið Malaví er meðal fjögurra fátækustu þjóða í veröldinni. Landsframleiðsla árið 2006 nam 513 milljörðum íslenskra króna. Í Malaví búa um 13,6 milljónir manna, þótt íbúatölur séu á reiki eins og í mörgum Afríkuríkjum. Landsframleiðsla á mann nemur því rúmlega 37.600 íslenskum krónum. Til samanburðar var þjóðarframleiðsla á Íslandi árið 2006 1.142 milljarðar íslenskra króna eða rúmlega 3,8 milljónir á mann sé miðað við að Íslendingar séu þrjú hundruð þúsund. Samkvæmt þessum tölum er malavíska hagkerfið tæplega helmingi minna en það íslenska, þrátt fyrir að þar búi rúmlega fjörutíu og fimm sinnum fleiri. Íslenska hagkerfið er því hundrað og einu sinni stærra en hið malavíska sé miðað við höfðatölu. Meðalárstekjur í Malaví nema um ellefu þúsund íslenskum krónum. Árið 2005 voru meðalárstekjur Íslendings 2.945.000 krónur. Samkvæmt því er meðal Íslendingur rétt rúmlega einn vinnudag að vinna sér inn árstekjur Malava. Malavíska hagkerfið byggist að stærstum hluta á landbúnaði. Tæplega fjörutíu prósent landsframleiðslu verður til í landbúnaðargeiranum og áttatíu prósent útflutningstekna. Rúmlega áttatíu prósent vinnuafls hefur viðurværi af landbúnaði. Raunar er það svo að einungis fimmtán prósent Malava eru í launaðri dagvinnu, aðrir stunda sjálfsþurftarbúskap eða fiskveiðar sér til lífsviðurværis. Helstu landbúnaðarafurðir eru tóbak, te og sykur. Maísræktun er gríðarlega útbreidd meðal sjálfsþurftarbænda og maís er undirstöðufæða landsmanna. Raunar er það svo að bregðist maísuppskeran verður hungursneyð í landinu. Árin 2003 og 2004 varð alger uppskerubrestur og að minnsta kosti fjörutíu og sex þúsund börn þjáðust af alvarlegri vannæringu samkvæmt tölum Flóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR). Þrátt fyrir að síðustu ár hafi maísuppskeran verið góð er ekki óalgengt að sjá níu til tíu ára börn sem líta út fyrir að vera fjórum til fimm árum yngri. Þessi börn eru fórnarlömb hungursneyðar. Vegna vannæringar hafa þau ekki náð líkamlegum þroska í samræmi við aldur.
Mest lesið Flugvirkjar fara í verkfall Viðskipti innlent Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Viðskipti innlent Telur yfir milljarð á dag í húfi Viðskipti innlent Hafa samband við farþega Viðskipti innlent Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Viðskipti innlent Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Viðskipti innlent Erlendis fjölgar draugastörfum: Auglýsa störf sem ekki eru til Atvinnulíf Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Viðskipti innlent Gengið aldrei verið lægra Viðskipti innlent Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Viðskipti erlent Fleiri fréttir Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Novo hættir að vera Nordisk Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Meta kaupir sig frá málaferlum vegna barnavelferðar Kanada svarar tollum Bandaríkjastjórnar Innkalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna Tollasamkomulag Bandaríkjanna og Kanada út um þúfur Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Sjá meira
Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Viðskipti erlent
Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Viðskipti erlent