Fyrirtæki sektuð fyrir mótþróa 11. júlí 2007 05:00 Robert Mugabe, forseti Simbabve, hefur farið fram á að fyrirtæki og verslanir lækki verð um helming til að þrýsta verðbólgu niður.
Yfirvöld í Afríkuríkinu Simbabve hafa sektað rúmlega 1.300 fyrirtæki þar í landi síðastliðinn hálfan mánuð og handtekið stjórnendur 33 fyrirtækja fyrir að bregðast ekki við tilskipun stjórnvalda frá í enda júní sem kveður á um að fyrirtæki lækki verð fyrir vöru og þjónustu um helming. Aðgerðin er hugsuð til að þrýsta verðbólgu í landinu niður. Á meðal þeirra sem hafa verið handteknir eru stjórnendur stærsta matvæla- og dreifingarfyrirtækis Simbabve, og forstjóri stærsta svínabúsins í landinu. Þá eru forstjórar fataverslana og olíufyrirtækja á meðal þeirra sem bíða þess í steininum að yfirvöld taki mál þeirra til umfjöllunar. Fréttastofan Associated Press bendir á að þótt verðbólga í Simbabve mælist 4.500% þá sé um opinberar tölur að ræða. Stjórnvöld hafi fingurna í flestu sem þar fer fram og því megi vænta að raunveruleg verðbólga sé allt að tvöfalt meiri. Litlu skiptir við hvora töluna er miðað því verðbólga hefur hvergi í veröldinni mælst hærri en í Simbabve.
Mest lesið Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Viðskipti innlent Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf GameStop vill kaupa eBay Viðskipti erlent Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Viðskipti innlent Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira