Hið hlýja hjarta Afríku 11. júlí 2007 01:45
Í Malaví búa 13,6 milljónir manna. Landið er í suð-austanverðri Afríku og á landamæri að Mósambík, Sambíu og Tansaníu. Malaví er landlukt en Malavívatn, sem er þriðja stærsta stöðuvatn í Afríku og hið níunda stærsta í veröldinni, þekur um tuttugu prósent flatarmáls landsins. n Malaví er alls um 118 þúsund ferkílómetrar og er því eitt þéttbýlasta land í Afríku. Landið er einnig meðal þeirra fjögurra fátækustu og eru meðaltekjur á ári um ellefu þúsund íslenskar krónur. Malavar geta vænst þess að ná tæplega fjörutíu og þriggja ára aldri að meðaltali. n Samkvæmt opinberum tölum bera 14,2 prósent íbúa landsins HIV-smit. Tölur yfirvalda þykja þó ekki áreiðanlegar og þykir líklegt að hlutfallið sé miklum mun hærra, allt að þrjátíu prósent. Talið er að allt að helmingur fólks á aldrinum fimmtán til fjörutíu ára beri veiruna. n Tæplega 63 prósent landsmanna eru læsir; rúmlega 76 prósent karlmanna og tæpur helmingur kvenna. Meðalaldur Malava er rúmlega 16,8 ár. n Hagvöxtur á síðasta ári nam 8,5 prósentum en verðbólga mældist 13,9 prósent. Gjaldmiðillinn er malavískur kwatsi, sem jafngildir tæplega hálfri íslenskri krónu. n Árið 2005 nam þróunaraðstoð til Malaví 36 milljörðum íslenskra króna, eða rúmlega fjórðungi landsframleiðslu það árið. Stærstu framlögin komu frá Bretlandi, Bandaríkjunum og Noregi. Íslendingar leggja einnig sitt af mörkum og eru með umfangsmikla starfsemi í landinu. n Malaví þýðir eldur á máli heimamanna og er nafnið til komið vegna þess hvernig sólinn glitrar á yfirborði Malavívatns við sólarupprás. Fólkið í landinu þykir með eindæmum vingjarnlegt og er Malaví stundum kallað „Hið hlýja hjarta Afríku“. n Opinbert tungumál er enska. Tungumál innfæddra eru hins vegar mun útbreiddari meðal fólks, þá sérstaklega chichewa sem er móðurmál tæplega sextíu prósent Malava.
Mest lesið Of snemmt að draga fram heykvíslar Viðskipti innlent Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Viðskipti innlent Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Viðskipti innlent Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Ósáttur við skjal Samkeppniseftirlitsins: „Mér finnst þetta bara ófaglegt“ Neytendur Drangar kaupa Brauð & Co Viðskipti innlent Bylgjan slær enn met í hlustun Samstarf Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Viðskipti innlent Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Viðskipti innlent Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rukka ekki lengur foreldra fyrir að sitja við hlið barna sinna Olíuverð ekki verið lægra frá því árásirnar á Íran hófust Missir stöðu sína sem eini billjónamæringur heims Konungborinn Katari kaupir eina af bungabunga-höllum Berlusconi Vilja að Evrópa velji á milli loftslagsins og gervigreindarkapphlaupsins Olíuverð lækkar eftir fregnir af samkomulagi Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Heimsins fyrsti billjónamæringur Sögulegri skráningu SpaceX lokið Hefja rannsókn á Ryanair Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Rannsaka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka foreldra fyrir að sitja með börnum sínum OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Sjá meira