Eldsneytisverð í hámarki vestanhafs 23. maí 2007 04:00 Eldsneytisverð hefur hækkað nokkuð á árinu og hefur ekki verið hærra í Bandaríkjunum síðan snemma á níunda áratug síðustu aldar. MYND/AFP
Heimsmarkaðsverð á hráolíu hækkaði í vikubyrjun eftir að skæruliðar réðust á ónotaða olíuvinnslustöð í eigu franska olíufyrirtækisins Total í Nígeríu á mánudag. Þótt skæruliðarnir hafi ekki unnið nein skemmdarverk er olíumarkaðurinn mjög viðkvæmur fyrir tíðum skærum í Nígeríu enda hefur framleiðsla þar í landi dregist saman um rúm þrjátíu prósent síðan í febrúar í fyrra vegna þessa. Samdrátturinn skiptir miklu máli fyrir heildarframleiðslu á hráolíu. Orkumálaráðuneyti Bandaríkjanna gefur út vikulega skýrslu sína um olíubirgðir landsins síðar í dag. Gert er ráð fyrir að heildarbirgðir aukist nokkuð á milli vikna þótt spáð sé samdrætti á eldsneytisbirgðum. Því megi gera ráð fyrir nokkurri hækkun á eldsneytisverði vestanhafs á næstunni en það hefur nú ekki verið hærra síðan í byrjun níunda áratugarins, að sögn fréttastofu Reuters. Þetta þykja ekki góðar fréttir við byrjun sumars þegar margir verða á ferðinni á vegum landsins. Verð á Brent-Norðursjávarolíu hækkaði um 1,07 dali í 71,50 dali á tunnu á mánudag. Í gær hægði á en verðið hefur þó ekki farið undir 70 dalina.
Mest lesið Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Viðskipti innlent Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Atvinnulíf Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Viðskipti erlent Spá örlítilli hjöðnun verðbólgu Neytendur Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Viðskipti erlent Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Viðskipti innlent Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Viðskipti innlent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Viðskipti innlent Festa og Gildi vilja sameinast Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Heimsins fyrsti billjónamæringur Sögulegri skráningu SpaceX lokið Hefja rannsókn á Ryanair Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Rannsaka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka foreldra fyrir að sitja með börnum sínum OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira