Hagnaður Bear Stearns dróst saman um 61 prósent 20. september 2007 13:52 Fyrir utan banka Bear Stearns, sem horfði upp á mikinn samdrátt í hagnaði sínum vegna óróleika á fasteignalánamarkaði. Mynd/AFP
Hagnaður bandaríska fjárfestingabankans Bear Stearns nam 171,3 milljónum bandaríkjadala, jafnvirði 10,8 milljarða íslenskra króna, á þriðja rekstrarfjórðungi ársins. Þetta er 61 prósenti minni hagnaður en á sama tíma í fyrra og skrifast að mestu vegna samdráttar á lánamarkaði með annars flokks fasteignalán í Bandaríkjunum og óróleika á fjármálamörkuðum. Fjármálastofnanir í Bandaríkjunum hafa komið betur inn í haustið en svartsýnustu spár hljóðuðu upp á. Afkoma Bear Sterns er hins vegar sú langversta en viðlíka tap hefur ekki sést í bókum bankans síðan í ágúst fyrir níu árum. Bankinn er jafnframt sá fyrsti vestanhafs til að gangast við því að hann hafi verið berskjaldaður fyrir hræringum á fjármálamarkaði vegna mikilla vanskila á fasteignalánum. Meðal annars hefur verið skrúfað fyrir tvo af vogunarsjóðum bankans sökum lausafjárþurrðar. Litlar líkur eru að þeir sem áttu fé í honum fái það greitt til baka. Hinir stóru bandarísku bankarnir eru Lehman Brothers og Morgan Stanley, en afkoma þeirra var skárri en spáð var. Hagnaður Lehman dróst saman um þrjú prósent en hins um 17 prósent.
Mest lesið Flugvirkjar fara í verkfall Viðskipti innlent Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Viðskipti innlent Telur yfir milljarð á dag í húfi Viðskipti innlent Hafa samband við farþega Viðskipti innlent Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Viðskipti innlent Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Viðskipti innlent Erlendis fjölgar draugastörfum: Auglýsa störf sem ekki eru til Atvinnulíf Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Viðskipti innlent Gengið aldrei verið lægra Viðskipti innlent Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Novo hættir að vera Nordisk Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Meta kaupir sig frá málaferlum vegna barnavelferðar Kanada svarar tollum Bandaríkjastjórnar Innkalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna Tollasamkomulag Bandaríkjanna og Kanada út um þúfur Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Sjá meira