Robert Tchenguiz flaggar í Sainsbury 14. mars 2007 04:45
Dótturfélag Tchenguiz Family Trust hefur eignast þriggja prósenta hlut í Sainsbury, þriðju stærstu stórmarkaðakeðju Bretlandseyja. Fyrir félaginu fer Robert Tchenguiz, verðandi stjórnarmaður í Existu og einn stærsti hluthafi þess félags. Hlutabréf í Sainsbury fóru í hæsta gengi í níu ár um miðja síðustu viku þegar greint var frá þessum kaupum. Breska yfirtökunefndin hefur nú gefið fjárfestahópi undir forystu CVC og Blackstone sex vikna frest til að leggja fram tilboð í verslanakeðjuna eftir að stjórn Sainsbury óskaði eftir því að þrýst yrði á hópinn. Talið er að aðrir fjárfestar renni hýru augu til breska félagsins, þar á meðal Marks & Spencer, Asda, Apax og sjóður í eigu kúveiska ríkisins. Íslenskir fjárfestar, eins og Baugur og Unity Investment, sem er í eigu Baugs, FL Group og Kevins Stanford, hafa tekið stöður í Sainsbury og hagnast á þeim viðskiptum. Sérfræðingar telja að yfirtökutilboð verði að hljóða upp á 550 pens á hlut en gengi Sainsbury stóð í 524 pensum í Kauphöllinni í Lundúnum í gær.
Mest lesið Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Viðskipti innlent Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Viðskipti erlent Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Viðskipti innlent Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Viðskipti innlent Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Viðskipti erlent Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira